134 Norræna félagið og norrænt samstarf
Kafli 1 af 7 - Tengsl þín við Norðurlönd
Hvað tengir þú við Norðurlönd? Hver eru þau og hvað eiga þau sameiginlegt?
Norðurlöndin eru Ísland, Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Finland (ásamt Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum). Þau eiga langa sameiginlega sögu og sameiginlegan menningararf. Þar af má t.d. nefna norður-germönsku tungumálin og norræna goðafræði. Löndin tengjast því þau eru
Finnst þér Ísland vera eitt af Norðurlöndunum?
Já. Við erum ekki hluti af Skandinavíu en erum hluti af Norðurlöndunum. Landnámsmennirnir komu flestir frá Noregi og við erum í miklu tengslum við hin norðurlöndin. T.d. menningartengslum og svo flytja margir Íslendingar þangað.
Hefur þú ferðast til Norðurlandanna? Var það í frí, eða tengt vinnu eða námi?
Já, hef komið til Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar. Fór til Oslóar með lest frá Gautaborg, var þar mjög stutt. Hef komið þrisvar til Kaupmannahafnar í fríi. Hef verið einn dag í Stokkhólmi og Malmö. Hef verið lengi í Gautaborg og nærliggjandi bæjum, svo sem Varberg og Borås.
Hefur þú búið á einhverju Norðurlandanna? Ef svo, hvar? Hver var tilgangurinn (nám, vinna, með fjölskyldu)?
Já, bjó þrjú ár í Svíþjóð sem barn. Bjó í Gautaborg meðan mamma mín var í sérfræðinámi í læknisfræði.
Lærðir þú dönsku/sænsku/norsku í skóla? Hefur það nýst þér síðar á ævinni, t.d. í starfi, á ferðalögum eða annað?
Ég fékk að læra sænsku í stað dönsku þar sem ég hafði núþegar grunn í málinu. Það hefur alltaf nýst mér þegar ég ferðast til Svíþjóðar og mér finnst alltaf gaman að æfa mig að tala málið.
Hver voru þín fyrstu kynni af norrænu samstarfi?
Kafli 2 af 7 - Norðurlönd í daglegu lífi
Lestu og skrifarðu norrænt tungumál annað en íslensku? Á hvaða stigi (byrjandi, miðlungs, vel, móðurmál)?
Eru einhverjir norrænir siðir viðhafðir á þínu heimili? Eða er haldið upp á norrænar hátíðir aðrar en íslenskar (t.d. Sankthans, Mårtensgås, J-dag, Semlans dag eða annað)?
Nýtir þú norræna fjölmiðla, t.d. sjónvarpsrásir, fréttaveitur eða tímarit? Getur þú nefnt dæmi um það?
Ertu með regluleg tengsl eða áttu í reglulegum samskiptum við einhvern á Norðurlöndum?
Ertu í einhverjum samtökum/hópum sem snúast um norræn málefni? Getur þú nefnt dæmi um það?
Tilheyrir þú einhverjum hópum á samfélagsmiðlum sem fjalla um norræn málefni? Getur þú nefnt dæmi um það?
Hefurðu miðlað þekkingu þinni til annarra? Hvers vegna og hvernig? Hvers vegna ekki? Getur þú nefnt dæmi um það?
Kafli 3 af 7 - Norræn samvinna í námi
Hefur þú stundað nám á Norðurlöndum? Ef svo er, hvað varð til þess að þú valdir að stunda nám þar?
Mannst þú eftir norrænum íþróttakeppnum á þinni skólagöngu, t.d. norræna skólahlaupið, norræna skólasundskeppni eða norræna skíðagangan? Tókst þú þátt í slíkum viðburðum?
Þekkir þú eða hefur þú tekið þátt í öðrum norrænum skólaverkefnum, til dæmis, Norden í Skolen, vinaskólar eða sótt lýðháskóla?
Kafli 4 af 7 - Norræn samvinna í starfi
Hefur norrænt samstarf komið við sögu í þínu starfi? Ef já, þá hvernig?
Hefur þú tekið þátt í starfi norrænna fagfélaga? Ef svo, á hvaða sviði?
Hefur þú farið á norrænar ráðstefnur og fundi? Ef svo, hvaða tungumál var notað á fundinum? Var annað tungumál notað utan skipulagðra funda?
Kafli 5 af 7 - Reynsla af norrænu samstarfi
Lýstu því norræna samstarfi sem þú þekkir. Hefur viðhorf þitt til norræns samstarfs eitthvað breyst gegnum árin?
Kannast þú við Norræna félagið og/eða samband Norrænu félagana á Norðurlöndum (FNF)?
Þekkir þú samstarf stjórnvalda á Norðurlöndum, til dæmis á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, Norðurlandaráðs eða á öðrum sviðum? Getur þú nefnt dæmi um það?
Þekkir þú til norræns samstarfs félagasamtaka? Getur þú nefnt dæmi um það?
Þekkir þú til norræns menningarsamstarfs, til dæmis Norrænu húsanna, norrænna sjóða sem hægt er að sækja styrki í, eða á öðrum sviðum? Getur þú nefnt dæmi um það?
Þekkir þú til norræns samstarf ungmenna, til dæmis Nordjobb eða Norden i skolen? Getur þú nefnt dæmi um það?
Veistu hvar og hvernig þú getur sótt upplýsingar um það sem er í boði á norrænum vettvangi til dæmis styrkjamöguleika, upplýsingar um flutninga milli Norðurlanda o.s.frv.?
Þekkir þú InfoNorden (Hallo Norðulönd) og hefur þú nýtt þér þá þjónustu?
Hefur þú tekið þátt í skipulegu norrænu samstarfi, til dæmis á sviði norræns ungmennastarfs, Nordjobb eða sótt norræn höfuðborgar- eða vinarbæjamót?
Kafli 6 af 7 - Norræna félagið
Þekkir þú starfsemi Norræna félagsins? Ef já, hefur þú tekið virkan þátt í því starfi?
Þekkir þú eða hefur tekið þátt í Nordjobb? Getur þú lýstu reynslu þinni?
Þekkir þú eða hefur tekið þátt í Snorraverkefninu? Getur þú lýst reynslu þinni?
Þekkir þú eða hefur tekið þátt í vinabæjarsamstarfi? Getur þú lýst reynslu þinni?
Þekkir þú til Norrænu bókmenntavikunnar, (bókasafnavikuna)?
Kafli 7 af 7 - Að lokum
Sérð þú fyrir þér að norrænt samstarf muni nýtast þér í framtíðinni? Hvernig?
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?