134 Norræna félagið og norrænt samstarf
Kafli 1 af 7 - Tengsl þín við Norðurlönd
Hvað tengir þú við Norðurlönd? Hver eru þau og hvað eiga þau sameiginlegt?
Mínir næstu nágrannar og frændur
Ísland
Danmörk
Færeyjar
Noregur
Svíþjóð
Finnland
Álandseyjar
Finnst þér Ísland vera eitt af Norðurlöndunum?
Já
Hefur þú ferðast til Norðurlandanna? Var það í frí, eða tengt vinnu eða námi?
Já, frí aðalega, en líka vinna og íþróttir
Hefur þú búið á einhverju Norðurlandanna? Ef svo, hvar? Hver var tilgangurinn (nám, vinna, með fjölskyldu)?
Nei
Lærðir þú dönsku/sænsku/norsku í skóla? Hefur það nýst þér síðar á ævinni, t.d. í starfi, á ferðalögum eða annað?
Dönsku
Nýtist að hluta í starfi, en mest við lestur á dönskum, sænskum og norskum bókum
Hver voru þín fyrstu kynni af norrænu samstarfi?
Sundkeppnir, 200m sundin í æsku
Kafli 2 af 7 - Norðurlönd í daglegu lífi
Lestu og skrifarðu norrænt tungumál annað en íslensku? Á hvaða stigi (byrjandi, miðlungs, vel, móðurmál)?
Les vel skrifa illa
Eru einhverjir norrænir siðir viðhafðir á þínu heimili? Eða er haldið upp á norrænar hátíðir aðrar en íslenskar (t.d. Sankthans, Mårtensgås, J-dag, Semlans dag eða annað)?
Nei
Nýtir þú norræna fjölmiðla, t.d. sjónvarpsrásir, fréttaveitur eða tímarit? Getur þú nefnt dæmi um það?
DK1, NRK1, SVT1 og stundum fréttir á netinu
Ertu með regluleg tengsl eða áttu í reglulegum samskiptum við einhvern á Norðurlöndum?
Nei
Ertu í einhverjum samtökum/hópum sem snúast um norræn málefni? Getur þú nefnt dæmi um það?
Nei
Tilheyrir þú einhverjum hópum á samfélagsmiðlum sem fjalla um norræn málefni? Getur þú nefnt dæmi um það?
Nei
Hefurðu miðlað þekkingu þinni til annarra? Hvers vegna og hvernig? Hvers vegna ekki? Getur þú nefnt dæmi um það?
Nei
Kafli 3 af 7 - Norræn samvinna í námi
Hefur þú stundað nám á Norðurlöndum? Ef svo er, hvað varð til þess að þú valdir að stunda nám þar?
Nei
Mannst þú eftir norrænum íþróttakeppnum á þinni skólagöngu, t.d. norræna skólahlaupið, norræna skólasundskeppni eða norræna skíðagangan? Tókst þú þátt í slíkum viðburðum?
Norræna sundkeppnin
Norðurlandamót háskóla í ýmsum íþróttum
Þekkir þú eða hefur þú tekið þátt í öðrum norrænum skólaverkefnum, til dæmis, Norden í Skolen, vinaskólar eða sótt lýðháskóla?
Nei
Kafli 4 af 7 - Norræn samvinna í starfi
Hefur norrænt samstarf komið við sögu í þínu starfi? Ef já, þá hvernig?
Já, rannsóknasamstarf landbúnaðarfélaga
Vestnorrænt samstarf
Hefur þú tekið þátt í starfi norrænna fagfélaga? Ef svo, á hvaða sviði?
Já, landbúnaðarrannsóknir
Hefur þú farið á norrænar ráðstefnur og fundi? Ef svo, hvaða tungumál var notað á fundinum? Var annað tungumál notað utan skipulagðra funda?
Já
Enska að mestu
Utan funda breytilegra
Kafli 5 af 7 - Reynsla af norrænu samstarfi
Lýstu því norræna samstarfi sem þú þekkir. Hefur viðhorf þitt til norræns samstarfs eitthvað breyst gegnum árin?
Norræn rannsóknaverkefi, norrænir rannsóknapeningar
Kannast þú við Norræna félagið og/eða samband Norrænu félagana á Norðurlöndum (FNF)?
Já
Þekkir þú samstarf stjórnvalda á Norðurlöndum, til dæmis á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, Norðurlandaráðs eða á öðrum sviðum? Getur þú nefnt dæmi um það?
Að einhverju leyti
Mest á svið menningar og rannsókna
Ýmis menningarverðlaun, Norræni genbankinn
Þekkir þú til norræns samstarfs félagasamtaka? Getur þú nefnt dæmi um það?
Nei
Þekkir þú til norræns menningarsamstarfs, til dæmis Norrænu húsanna, norrænna sjóða sem hægt er að sækja styrki í, eða á öðrum sviðum? Getur þú nefnt dæmi um það?
Veit ekki um menningarstyrki, en reikna með að þeir séu til
Nokkrir peningar eru í sjóðum Norræna genbankans og Vestnorræns samstarfs
Almennt ekki háir styrkir, en fyrir samstarfskostnaði fremur en miklum launum og/rannsóknum
Þekkir þú til norræns samstarf ungmenna, til dæmis Nordjobb eða Norden i skolen? Getur þú nefnt dæmi um það?
Þekki það ekki, en hef vitað af Nordjobb lengi
Veistu hvar og hvernig þú getur sótt upplýsingar um það sem er í boði á norrænum vettvangi til dæmis styrkjamöguleika, upplýsingar um flutninga milli Norðurlanda o.s.frv.?
Nei
Reikna með að Norræna húsið, norræna félagið, hagstofan, þjóðskrá, menntamálaráðuneytið gætu hjálpað
Þekkir þú InfoNorden (Hallo Norðulönd) og hefur þú nýtt þér þá þjónustu?
Nei
Hefur þú tekið þátt í skipulegu norrænu samstarfi, til dæmis á sviði norræns ungmennastarfs, Nordjobb eða sótt norræn höfuðborgar- eða vinarbæjamót?
Nei
Kafli 6 af 7 - Norræna félagið
Þekkir þú starfsemi Norræna félagsins? Ef já, hefur þú tekið virkan þátt í því starfi?
Nei
Þekkir þú eða hefur tekið þátt í Nordjobb? Getur þú lýstu reynslu þinni?
Nei
Þekkir þú eða hefur tekið þátt í Snorraverkefninu? Getur þú lýst reynslu þinni?
Nei
Þekkir þú eða hefur tekið þátt í vinabæjarsamstarfi? Getur þú lýst reynslu þinni?
Nei
Þekkir þú til Norrænu bókmenntavikunnar, (bókasafnavikuna)?
Nei
Kafli 7 af 7 - Að lokum
Sérð þú fyrir þér að norrænt samstarf muni nýtast þér í framtíðinni? Hvernig?
Nei
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Nei
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?
Töluverð endurtekning