Leita



Vinsamlega sýnið biðlund

LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Karlkyns / 1955

Nánari upplýsingar

Númer2022-5-2
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
SentMóttekið28.11.2023
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 7 - Tengsl þín við Norðurlönd

Hvað tengir þú við Norðurlönd? Hver eru þau og hvað eiga þau sameiginlegt?

málið


Finnst þér Ísland vera eitt af Norðurlöndunum?




Hefur þú ferðast til Norðurlandanna? Var það í frí, eða tengt vinnu eða námi?

fri og vinnutengt


Hefur þú búið á einhverju Norðurlandanna? Ef svo, hvar? Hver var tilgangurinn (nám, vinna, með fjölskyldu)?

3 mánuði í Sigtuna, Svíþjóð.
starfsnám


Lærðir þú dönsku/sænsku/norsku í skóla? Hefur það nýst þér síðar á ævinni, t.d. í starfi, á ferðalögum eða annað?

dönsku
já nýtzt mér


Hver voru þín fyrstu kynni af norrænu samstarfi?

æskulýðsstarf í kirkjunni 1982



Kafli 2 af 7 - Norðurlönd í daglegu lífi

Lestu og skrifarðu norrænt tungumál annað en íslensku? Á hvaða stigi (byrjandi, miðlungs, vel, móðurmál)?

Blandinavískt mál, les og tala


Eru einhverjir norrænir siðir viðhafðir á þínu heimili? Eða er haldið upp á norrænar hátíðir aðrar en íslenskar (t.d. Sankthans, Mårtensgås, J-dag, Semlans dag eða annað)?

nei


Nýtir þú norræna fjölmiðla, t.d. sjónvarpsrásir, fréttaveitur eða tímarit? Getur þú nefnt dæmi um það?

nei, ekki lengur


Ertu með regluleg tengsl eða áttu í reglulegum samskiptum við einhvern á Norðurlöndum?

Danmörk, félagar


Ertu í einhverjum samtökum/hópum sem snúast um norræn málefni? Getur þú nefnt dæmi um það?

Norræna félagið á Íslandi


Tilheyrir þú einhverjum hópum á samfélagsmiðlum sem fjalla um norræn málefni? Getur þú nefnt dæmi um það?

nei


Hefurðu miðlað þekkingu þinni til annarra? Hvers vegna og hvernig? Hvers vegna ekki? Getur þú nefnt dæmi um það?

já meðal kunningja og félaga hérna heima



Kafli 3 af 7 - Norræn samvinna í námi

Hefur þú stundað nám á Norðurlöndum? Ef svo er, hvað varð til þess að þú valdir að stunda nám þar?

nei


Mannst þú eftir norrænum íþróttakeppnum á þinni skólagöngu, t.d. norræna skólahlaupið, norræna skólasundskeppni eða norræna skíðagangan? Tókst þú þátt í slíkum viðburðum?

norræna sundkeppnin, tók mikinn þátt í henni


Þekkir þú eða hefur þú tekið þátt í öðrum norrænum skólaverkefnum, til dæmis, Norden í Skolen, vinaskólar eða sótt lýðháskóla?

lýðskóla í Danmörk, kynningarheimsóknir



Kafli 4 af 7 - Norræn samvinna í starfi

Hefur norrænt samstarf komið við sögu í þínu starfi? Ef já, þá hvernig?

æskulýðsstarfi í kirkjunni


Hefur þú tekið þátt í starfi norrænna fagfélaga? Ef svo, á hvaða sviði?

Íslenska félaginu


Hefur þú farið á norrænar ráðstefnur og fundi? Ef svo, hvaða tungumál var notað á fundinum? Var annað tungumál notað utan skipulagðra funda?

norræn hausborgarmót í öllum borgunum



Kafli 5 af 7 - Reynsla af norrænu samstarfi

Lýstu því norræna samstarfi sem þú þekkir. Hefur viðhorf þitt til norræns samstarfs eitthvað breyst gegnum árin?

í gegnum félagið hérna heima og í stjórn Reykjavíkurfélagsins


Kannast þú við Norræna félagið og/eða samband Norrænu félagana á Norðurlöndum (FNF)?




Þekkir þú samstarf stjórnvalda á Norðurlöndum, til dæmis á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, Norðurlandaráðs eða á öðrum sviðum? Getur þú nefnt dæmi um það?

jú í æskulýðsstarfi


Þekkir þú til norræns samstarfs félagasamtaka? Getur þú nefnt dæmi um það?

samnorrænt æskulýðsstarf


Þekkir þú til norræns menningarsamstarfs, til dæmis Norrænu húsanna, norrænna sjóða sem hægt er að sækja styrki í, eða á öðrum sviðum? Getur þú nefnt dæmi um það?

í gegnum Norræna félagið, þar sem ég hefi hjálpað að sækja um lýðsskóla


Þekkir þú til norræns samstarf ungmenna, til dæmis Nordjobb eða Norden i skolen? Getur þú nefnt dæmi um það?

þekki til þess, nokkra sem hafa verið í Nordjobb


Veistu hvar og hvernig þú getur sótt upplýsingar um það sem er í boði á norrænum vettvangi til dæmis styrkjamöguleika, upplýsingar um flutninga milli Norðurlanda o.s.frv.?

norræna húsið og Reykjavíkurdeildina á Óðinsgötunni


Þekkir þú InfoNorden (Hallo Norðulönd) og hefur þú nýtt þér þá þjónustu?

þekki til en ekki nýtt mér neitt


Hefur þú tekið þátt í skipulegu norrænu samstarfi, til dæmis á sviði norræns ungmennastarfs, Nordjobb eða sótt norræn höfuðborgar- eða vinarbæjamót?

norræn hausborgarmót mörgum sinnum



Kafli 6 af 7 - Norræna félagið

Þekkir þú starfsemi Norræna félagsins? Ef já, hefur þú tekið virkan þátt í því starfi?

í gegnum Reykjavíkurdeildina og hefi tekið nokkuð þátt í því, sérstaklega þegar var í stjórninni þar


Þekkir þú eða hefur tekið þátt í Nordjobb? Getur þú lýstu reynslu þinni?

þekki til, en ekki tekið þátt


Þekkir þú eða hefur tekið þátt í Snorraverkefninu? Getur þú lýst reynslu þinni?

hitt krakka úr því verkefni og verið með í samstarfi þar


Þekkir þú eða hefur tekið þátt í vinabæjarsamstarfi? Getur þú lýst reynslu þinni?

nei


Þekkir þú til Norrænu bókmenntavikunnar, (bókasafnavikuna)?

þekki til



Kafli 7 af 7 - Að lokum

Sérð þú fyrir þér að norrænt samstarf muni nýtast þér í framtíðinni? Hvernig?

þar sem norræn samtök hjálpa til


Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?

Nauðsynlegt starf


Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?

nei, bara fínt að hafa tekið þetta fyrir


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana