Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurUna Björg Magnúsdóttir 1990-
VerkheitiÓútgefið frímerki, endurgert eftir minni
Ártal2022

Stærð30 x 42 cm
Eintak/Upplag7/10

Nánari upplýsingar

NúmerHb-1589
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráHeildarsafn


Lýsing

Verkið er endurgerð próförk sem var hafnað af frímerkjanefnd. Árið 1992 átti að gefa út frímerki með teikningum af íslenska fálkanum. Frímerki voru oft prentuð í Sviss, í þetta skipti þótti einnig hagkvæmt að láta teikna frímerkið upp eftir ljósmynd úti í prentsmiðjunni. Þegar próförkin barst frá prentsmiðjunni var hins vegar búið að teikna fálkann sitjandi á trjágrein umvafinn svissneskum alpafjólum. Íslenski fálkinn situr aldrei uppi í trjám, hann heldur sig í fjallendi með bröttum hlíðum, í gljúfrum og við sæbrattar sjávarstrendur, eins finnast alpafjólur ekki á Íslandi. Útgáfa frímerkja er formlegt ferli og eru nýjar útgáfur tilkynntar með árs fyrirvara. Frímerkjanefndinni þótti í fyrstu of seint að hafna frímerkinu þar sem það var seint í ferlinu og stutt í útgáfudag. En ferlið var stoppað og frímerkið endurteiknað, þar sem fálkinn er í sínu rétta umhverfi. 

Þetta listaverk er í safneign Hafnarborgar – menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Safneignin telur yfir 1500 verk, er þetta er skrifað. Í skráningunni er verkunum skipt í fjóra flokka sem eru: almenn listaverkaskrá, stofngjöf, verk Eiríks Smith og útilistaverk í Hafnarfirði. Ekki eru til birtingarhæfar ljósmyndir af öllum verkum, þó unnið sé að úrbætum í þeim efnum.

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og safnsins. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu- eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting eða eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef (myndstef@myndstef.is).


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.