Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurEinar Falur Ingólfsson 1966-
VerkheitiElínborg Una í sóttkví vegna kórónuveirunnar Covid-19, Skógarseli á Mosfellsheiði, mars 2020 – Á hei
Ártal2020

GreinLjósmyndun - Litljósmyndir
Stærð59 x 93 cm
Eintak/Upplag1/1
EfnisinntakDóttir, Faðir, Faraldur, Feðgin, Gluggi, Gróður, Maður, Snjór, Sóttkví, Speglun, Stúlka, Sumarbústaður, Vetur

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-11717
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniLjósmynd, Ljósmyndapappír
Aðferð Ljósmyndun
HöfundarétturEinar Falur Ingólfsson 1966-, Myndstef

Lýsing

Myndirnar tvær sýna annars vegar yngri dóttur listamannsins, Elínborgu Unu, innan við glerið í sumarbústað á Mosfellsheiði, þar sem hún var í einangrun eftir að hafa verið send heim úr menntaskóla í Noregi, vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar Covid-19 í mars 2019. Á hinni myndinni sést fannfergið umhverfis húsið þar sem hún dvaldi.


Sýningartexti

Einar Falur Ingólfsson hefur á ferli sínum fengist jöfnum höndum við heimildaljósmyndun og listræna ljósmyndun í formi dagbókar, þar sem saman fer hlutlæg skráning og huglæg nálgun. Ljósmyndaverkið Elínborg Una í sóttkví vegna kórónuveirunnar Covid-19, Skógarseli á Mosfellsheiði, mars 2020 – Á heiðinni - Skógarsel á Mosfellsheiði, mars 2020 var sýnt á einkasýningunni „Um tíma ­– Dagbók tuttugu mánaða“ árið 2022. Verkin á sýningunni veittu innsýn í líf listamannsins og fjölskyldu hans á 20 mánaða tímabili. Dagbókin spannar tímabilið frá því að dætur hans héldu báðar til náms erlendis og þar til fjölskyldan sameinaðist að nýju – en tafir urðu á því vegna heimsfaraldursins. Á annarri ljósmyndinni sést hvar yngri dóttirin horfir út um glugga sumarbústaðar þar sem hún dvaldi um skeið í einangrun og kyrrstöðu, líkt og snjóbreiðan sem lagst hefur yfir umhverfið á hinni myndinni virðist undirstrika. Ásýnd ljósmyndarans speglast í gluggarúðunni og dregur fram samspil nærveru og fjarlægðar milli feðginanna, og jafnframt innri veruleika andspænis ytri aðstæðum er móta líf einstaklinga og samfélaga.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.