Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
HeitiEldhúskollur, Hvalbein, óþ. hlutv.

StaðurGrímsfjós
ByggðaheitiFlói
Sveitarfélag 1950Stokkseyrarhreppur
Núv. sveitarfélagSveitarfélagið Árborg
SýslaÁrnessýsla (8700) (Ísland)
LandÍsland

GefandiHalldór Andrésson 1941-1997

Nánari upplýsingar

NúmerBÁ-2831
AðalskráMunur
UndirskráAlmenn munaskrá
Stærð32 cm
EfniBein

Lýsing

Hvalbein, hryggjarliður,  sem notað var sem undirstaða við að berja harðfisk. Úr dánarbúi Halldórs Andréssonar dáinn árið 1997. Foreldrar hans voru Andrés Markússon og Jónína Kristjánsdóttir (frá Langholtsparti í Hraungerðishreppi) sem bjuggu frá 1939 til 1969 í Grímsfjósum í Stokkseyrarhreppi. Áður bjuggu þar 1903-1939 foreldrar Andrésar þau Markús Þórðarson og Halldóra Jónsdóttir. 

Hryggjarliðurinn var notaður í eldhúsi vesturbæjarins á Grímsfjósum á Stokkseyri. Þar bjó Helga, einstæðingur sem fór ekki troðnar slóðir og var sérkennileg. Eldhúsið hennar var í skansi og þar inni sat hún á þessum hryggjarlið úr hval. Þetta var hlóðaeldhús og hún hafði teppi fyrir dyrunum sem snéri til hafs. Helga bar viðurnefnið „Helga he he“ meðal Stokkseyringa. Þegar hún féll frá eignaðist Andrés Markússon í austurbæ Grímsfjósahryggjarliðinn. Dánarbú Halldórs, sonar Andrésar, afhenti safninu hryggjarliðinn ásamt mörgum fleiri munum árið 1997.

Þó að í heimild hafi verið sagt að hryggjarliðurinn hafi verið eldhússtóll „Helgu he he“ benda ummerki á honum til þess að hann hafi verið notaður sem undirstaða við að berja harðfisk. Slitið er í miðju eins og eftir hníf eða öxi. Alltítt var að svona hryggjarliðir væru notaðir sem sæti í hlóðaeldhúsum.

Þetta aðfang er í Byggðasafni Árnesinga. Fjöldi færslna hjá safninu var í árslok 2022 sem hér segir: Fornleifar 916, safnmunir 7.418, ljósmyndir 6.788. Í þessum tölum eru safnmunir Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka og Tónminjaseturs Íslands.

Söfnun muna til Byggðasafns Árnesinga hófst árið 1953. Safnkosturinn er að stærstum hluta skráður í Sarp.

Allar leiðréttingar og viðbótarupplýsingar eru vel þegnar.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.