Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
MyndefniAmma, Gleraugu, Kona, Kvenmaður, Skotthúfa, Upphlutur
Nafn/Nöfn á myndGuðný Magnúsdóttir 1886-1964, Þorsteinsína Guðrún Brynjólfsdóttir 1879-1969
Ártal1930-1950

SýslaStrandasýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-4-77
AðalskráMynd
UndirskráAlmennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiElín Skeggjadóttir 1939-

Lýsing

Tvær eldri konur eru á myndinni. Sú til vinstri er klædd upphlut, í ljósri blússu, með skotthúfu á höfði og gleraugu. Konan hægra megin við hana er einnig í upphlut, en dekkri blússu, einnig með skotthúfu og gleraugu.

Aftan á myndina er skrifað "Amma, Guðný Magnúsdóttir, Kollafjarðarnesi með vinkonu sinni Þorsteinssínu á Víðidalsá."

Mynd er úr safni Elínar Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf og Ragnheiður Jónsdóttir frá Kollafjarðarnesi. Þau bjuggu á Felli í Kollafirði 1929-1932, svo á Ísafirði til 1946 en fluttu þá til Reykjavíkur.

Þetta aðfang er í Sauðfjársetri á Ströndum. Safnið varðveitir yfir 1000 muni, fjölda skjala og bóka, nokkur listaverk, u.þ.b. 2000 eldri ljósmyndir og um 4000 samtímamyndir. Einnig er safnað minningum Strandamanna og margvíslegum fróðleik með spurningaskrám og viðtölum. Árið 2017 stendur yfir skráningarátak þar sem upplýsingar um eldri myndir og muni eru skráðar í Sarp.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.