Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Vantar lýsingu


Landfræðileg staðsetning


MyndefniBarn, Faðir, Feðgar, Karlmaður, Sonur, Strákur
Nafn/Nöfn á myndÁgúst Hjálmarsson 1944-2021, Hjálmar Jónsson 1910-1993
Ártal1930-1950

StaðurKollafjarðarnes
ByggðaheitiTungusveit
Sveitarfélag 1950Kirkjubólshreppur
Núv. sveitarfélagStrandabyggð
SýslaStrandasýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-4-72
AðalskráMynd
UndirskráAlmenn myndaskrá, Almennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiElín Skeggjadóttir 1939-

Lýsing

 Til vinstri á myndinni er ungur strákur í mynstraðri peysu, hægra megin við hann er dökkklæddur, fullorðinn maður sem heldur í hendi stráksins. Fyrir aftan þá er ógreinileg bygging.

Aftan á myndina er skrifað "Hjálmar Jónsson frá Kollafjarðarnesi með son sinn Ágúst. Hann bjó fyrst á Felli í Kollafirði en flutti svo að Innsta-Vogi við Akranes og bjó þar síðan."

Mynd er úr safni Elínar Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf og Ragnheiður Jónsdóttir frá Kollafjarðarnesi. Þau bjuggu á Felli í Kollafirði 1929-1932, svo á Ísafirði til 1946 en fluttu þá til Reykjavíkur.

Þetta aðfang er í Sauðfjársetri á Ströndum. Safnið varðveitir yfir 1000 muni, fjölda skjala og bóka, nokkur listaverk, u.þ.b. 2000 eldri ljósmyndir og um 4000 samtímamyndir. Einnig er safnað minningum Strandamanna og margvíslegum fróðleik með spurningaskrám og viðtölum. Árið 2017 stendur yfir skráningarátak þar sem upplýsingar um eldri myndir og muni eru skráðar í Sarp.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.