Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
MyndefniAlpahúfa, Kona, Maður, Sixpensari
Ártal1930-1950

SýslaStrandasýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-4-67
AðalskráMynd
UndirskráAlmenn myndaskrá, Almennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiElín Skeggjadóttir 1939-

Lýsing

Fimm manneskjur eru á myndinni, þrír ungir menn og tvær ungar konur. Mennirnir eru allir þrír með sixpensara, en konurnar með eitthvað sem gætu verið alpahúfur. Þau standa utandyra og er fjörður eða dalur fyrir aftan þau.

Aftan á myndina er skrifað "Matti, Gugga, Brandur, Valla og Halli, systkinin frá Kollafjarðarnesi". 

Mynd er úr safni Elínar Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf og Ragnheiður Jónsdóttir frá Kollafjarðarnesi. Þau bjuggu á Felli í Kollafirði 1929-1932, svo á Ísafirði til 1946 en fluttu þá til Reykjavíkur.

Þetta aðfang er í Sauðfjársetri á Ströndum. Safnið varðveitir yfir 1000 muni, fjölda skjala og bóka, nokkur listaverk, u.þ.b. 2000 eldri ljósmyndir og um 4000 samtímamyndir. Einnig er safnað minningum Strandamanna og margvíslegum fróðleik með spurningaskrám og viðtölum. Árið 2017 stendur yfir skráningarátak þar sem upplýsingar um eldri myndir og muni eru skráðar í Sarp.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.