Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Vantar lýsingu


Landfræðileg staðsetning


MyndefniDrengur, Gleraugu, Hundur, Kragi, Snjór, Stúlka, Unglingur
Nafn/Nöfn á myndGuðbjörg Jónsdóttir 1921-2012, Magnús Jónsson 1913-2007, Valgerður Jónsdóttir 1918-1993
Ártal1935-1950

StaðurKollafjarðarnes
ByggðaheitiTungusveit
Sveitarfélag 1950Kirkjubólshreppur
Núv. sveitarfélagStrandabyggð
SýslaStrandasýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-4-66
AðalskráMynd
UndirskráAlmenn myndaskrá, Almennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiElín Skeggjadóttir 1939-

Lýsing

Fjórar ungar manneskjur eru á myndinni, sem halla sér allar áfram með hendur á hnjám. Frá vinstri er ungur maður, í ljósum fötum, buxum og skyrtu sem er girt ofan í þær, og kringlótt gleraugu. Hægra megin við hann er ung kona, klædd í mynstraðan kjól með kraga. Hægra megin við hana er önnur ung kona, einnig í mynstruðum (gætu verið blóm) kjól og líklega með sjal utan um axlirnar. Lengst til hægri er sú þriðja, með stóran hvítan kraga og kjól. Fyrir framan þær sem eru til hægri er hundur, mögulega að hrista sig því myndin af honum er svo óskýr. Þau standa á snjóbreiðu, með sjó fyrir aftan sig og fjöll þar fyrir aftan.

Aftan á myndina er skrifað "Magnús Jónsson, Valgerður Jónsdóttir, ? og Guðbjörg Jónsdóttir frá Kollafjarðanesi."

Mynd er úr safni Elínar Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf og Ragnheiður Jónsdóttir frá Kollafjarðarnesi. Þau bjuggu á Felli í Kollafirði 1929-1932, svo á Ísafirði til 1946 en fluttu þá til Reykjavíkur.

Þetta aðfang er í Sauðfjársetri á Ströndum. Safnið varðveitir yfir 1000 muni, fjölda skjala og bóka, nokkur listaverk, u.þ.b. 2000 eldri ljósmyndir og um 4000 samtímamyndir. Einnig er safnað minningum Strandamanna og margvíslegum fróðleik með spurningaskrám og viðtölum. Árið 2017 stendur yfir skráningarátak þar sem upplýsingar um eldri myndir og muni eru skráðar í Sarp.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.