Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Vantar lýsingu


Landfræðileg staðsetning


Ljósmyndari/Höf.Guðmundur Tryggvi Samúelsson 1889-1969
MyndefniKarlmaður, Poki, Stafur
Nafn/Nöfn á myndSigurður Magnússon -1940
Ártal1930-1939

StaðurHólmavík
Annað staðarheitiGamla-Hólmavík
ByggðaheitiSteingrímsfjörður
Sveitarfélag 1950Hólmavíkurhreppur
Núv. sveitarfélagStrandabyggð
SýslaStrandasýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-4-62
AðalskráMynd
UndirskráAlmennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiElín Skeggjadóttir 1939-

Lýsing

Eldri karlmaður er á myndinni, Sigurður Magnússon sem kallaður var Siggi hundadoktor eða hundalæknir vegna starfs síns á efri árum. Hann er með  stóra poka í báðum höndum og auk þess staf í annarri. Hann er í jakka sem er hnepptur á einni tölu og með einhverskonar hatt á höfðinu.

Mynd er úr safni Elínar Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf og Ragnheiður Jónsdóttir frá Kollafjarðarnesi. Þau bjuggu á Felli í Kollafirði 1929-1932, svo á Ísafirði til 1946 en fluttu þá til Reykjavíkur.

Þetta aðfang er í Sauðfjársetri á Ströndum. Safnið varðveitir yfir 1000 muni, fjölda skjala og bóka, nokkur listaverk, u.þ.b. 2000 eldri ljósmyndir og um 4000 samtímamyndir. Einnig er safnað minningum Strandamanna og margvíslegum fróðleik með spurningaskrám og viðtölum. Árið 2017 stendur yfir skráningarátak þar sem upplýsingar um eldri myndir og muni eru skráðar í Sarp.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.