Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Vantar lýsingu


Landfræðileg staðsetning


MyndefniDrengur, Fólk, Hattur, Hárslæða, Höfuðklútur, Karlmaður, Kona, Sixpensari, Sjal, Strákur, Svunta
Nafn/Nöfn á myndBenedikt Guðmundur Grímsson 1898-1980, Guðjón Grímsson 1903-1995
Ártal1920-1930

StaðurKirkjuból 1
ByggðaheitiTungusveit
Sveitarfélag 1950Kirkjubólshreppur
Núv. sveitarfélagStrandabyggð
SýslaStrandasýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-4-60
AðalskráMynd
UndirskráAlmennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiElín Skeggjadóttir 1939-

Lýsing

Benedikt á Kirkjubóli ungur og hans fjölskylda. 

Sjö manns eru á myndinni, standandi utandyra. Frá vinstri er maður með sixpensara á höfði og í ljósum jakka með þremur tölum. Aðeins fyrir framan hann og til hægri er ungur drengur, með eitthvað á hausnum sem gæti verið hattur. Næst kemur fullorðinn maður, dökkklæddur og með hatt. Eftir honum kemur kona sem snýr aðeins að honum, í kjól og með ljósa slæðu eða klút um höfuðið. Hægra megin við hana er önnur kona, álíka klædd með klút um höfuðið, í kjól og með svuntu. Hægra megin við hana er eldri kona, einnig með slæðu um höfuðið og slæðu um axlirnar. Á endanum stendur maður með sixpensara og í dökkum fötum.

Mynd er úr safni Elínar Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf og Ragnheiður Jónsdóttir frá Kollafjarðarnesi. Þau bjuggu á Felli í Kollafirði 1929-1932, svo á Ísafirði til 1946 en fluttu þá til Reykjavíkur.

Þetta aðfang er í Sauðfjársetri á Ströndum. Safnið varðveitir yfir 1000 muni, fjölda skjala og bóka, nokkur listaverk, u.þ.b. 2000 eldri ljósmyndir og um 4000 samtímamyndir. Einnig er safnað minningum Strandamanna og margvíslegum fróðleik með spurningaskrám og viðtölum. Árið 2017 stendur yfir skráningarátak þar sem upplýsingar um eldri myndir og muni eru skráðar í Sarp.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.