Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Vantar lýsingu


Landfræðileg staðsetning


MyndefniKarlmaður, Kirkja, Prestakragi, Prestshempa, Prestur
Nafn/Nöfn á myndAndrés Einar Skarphéðinn Ólafsson 1921-2012, Jón Brandsson 1875-1959
Ártal1930-1950

StaðurKollafjarðarneskirkja
ByggðaheitiTungusveit
Sveitarfélag 1950Kirkjubólshreppur
Núv. sveitarfélagStrandabyggð
SýslaStrandasýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

Númer2021-4-4
AðalskráMynd
UndirskráAlmennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiElín Skeggjadóttir 1939-

Lýsing

Tveir prestar standa við inngang að kirkju, báðir klæddir í hempu og með kraga. Sá til vinstri er eldri, með hvítt hár og heldur á nokkrum bókum og horfir á hinn. Maðurinn til hægri horfir til hægri og er með greiparnar spenntar fyrir framan sig.

Til vinstri er sr. Jón Brandsson og til hægri er sr. Andrés Einar Skarphéðinn Ólafsson og þeir standa fyrir utan Kollafjarðarneskirkju.

Myndin er tekin á Kollafjarðarnesi þegar Jón Brandsson, afi Elínar Skeggjadóttur, lét af prestskap og sr. Andrés tók við.

Mynd úr safni Elínar Skeggjadóttur. Foreldrar hennar voru Skeggi Samúelsson frá Miðdalsgröf og Ragnheiður Jónsdóttir frá Kollafjarðarnesi. Þau bjuggu á Felli í Kollafirði 1929-1932, svo á Ísafirði til 1946 en fluttu þá til Reykjavíkur.

Þetta aðfang er í Sauðfjársetri á Ströndum. Safnið varðveitir yfir 1000 muni, fjölda skjala og bóka, nokkur listaverk, u.þ.b. 2000 eldri ljósmyndir og um 4000 samtímamyndir. Einnig er safnað minningum Strandamanna og margvíslegum fróðleik með spurningaskrám og viðtölum. Árið 2017 stendur yfir skráningarátak þar sem upplýsingar um eldri myndir og muni eru skráðar í Sarp.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.