Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurGeorg Guðni Hauksson 1961-2011
VerkheitiÁn titils
Ártal2007

GreinMálaralist, Málaralist - Olíumálverk
Stærð50 x 50 cm
EfnisinntakLandslag

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-11681
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniOlía, Strigi
AðferðTækni,Málun
HöfundarétturGeorg Guðni Hauksson-Erfingjar , Myndstef

Lýsing

Vorið 2004 keypti Georg Guðni sér landspildu þar sem hann átti síðar eftir að reisa sér heimili og vinnustofu. Landspildunni var gefið nafnið Berangur. Vera Georgs Guðna á Berangri átti eftir að hafa afgerandi áhrif á þróun hinstu verka hans. Öll bera þau með sér sterkt svipmót þess hrjóstruga eyðilands er einkennir náttúru landsvæðisins í kringum Berangur. Sem fyrr byggja þau á næmu skynbragði og upplifunum Georgs Guðna gagnvart umhverfi sínu. Jafnt frammi fyrir hraunkarlalegum og veðurbörðum harðbalanum, sem stríðum náttúruöflunum allt um kring. Í verkum sínum fangaði Georg Guðni þennan frumkraft með einkar fínlegum og grípandi hætti. Frammi fyrir þeim er líkt og markalínur andstæðra afla tilverunnar máist út með einu pensilstriki. 


Heimildir

Georg Guðni. Berangur. Listasafn Íslands, 2021.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.