Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurSigrún Sverrisdóttir 1949-
VerkheitiKonur og menn
Ártal1974

GreinTextíllist, Textíllist - Myndvefnaður
Stærð150 x 102 cm
EfnisinntakKona, Maður

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-11638
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniBómull, Ull
AðferðTækni,Textíltækni,Vefnaður,Myndvefnaður
HöfundarétturMyndstef , Sigrún Sverrisdóttir 1949-

Sýningartexti

Vefnaður er tímafrekur og því eiga textíllistamenn ekki alltaf hægt um vik hvað varðar einkasýningar. Textílfélaginu, sem var stofnað árið 1974 og starfar enn, var meðal annars ætlað að stuðla að samsýningum félagsmanna. Sama ár var einnig settur á fót norrænn textílþríæringur og tók félagið þátt í uppbyggingu hans frá upphafi. Sýningar þríæringsins fóru um öll Norðurlöndin og átti hann mikilvægan þátt í að skapa textíllist hagstæð skilyrði þau ár sem hann var við lýði, eða fram til 1995. Meðal þeirra níu verka eftir sex íslenska listamenn sem voru á fyrsta þríæringnum 1976–1977 var verk Sigrúnar Sverrisdóttur, Konur og menn, sem eins og mörg önnur textílverk frá þessum tíma endurspeglar þjóðfélagsumræðu samtímans þar sem réttindabarátta kvenna var ofarlega á baugi. Uppgangur textíllistar á áttunda áratugnum hélst í hendur við kvennabaráttuna í landinu og segja má að baráttan fyrir almennri viðurkenningu textíllistar sem fullgildrar greinar innan frjálsra lista endurspegli baráttu kvenna fyrir fullri viðurkenningu á störfum sínum í þjóðfélaginu.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.