126 Eurovision-hefðir
Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar
Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?
Ég man ekki eftir keppninni öðruvísi en í beinni útsendingu enda var ég ekki nema 5-6 ára þegar byrjað var að senda hana út beint á Íslandi.
Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?
Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu
Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?
Ég man bara eftir söngvakeppninni í beinni útsendingu þannig ég þekki ekki annað.
Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?
Þegar ég var krakki og unglingur þá fylgdumst við foreldrarar mínir alltaf með keppninni, bæði undankeppninni hér heima og eins sjálfri söngvakeppninni. Ég fylgdist líka með henni þegar ég varð fullorðin, oft þó bara með öðru auganu eins og sagt er. Eftir að keppnin færðist yfir á fleiri en eitt kvöld þá hef ég reynt að fylgjast með þegar Ísland er að keppa, hvort sem það er í undankeppninni eða bæði undan-og aðalkeppninni.
Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?
Á fullorðinsárum hef ég venjulega bara horft á keppnina sjálfa og hef lítið fylgst með þáttunum þar sem spáð er um úrslitin. Ef ég er stödd á annarra manna heimilum og heimilisfólkið horfir á þessa þætti þá geri ég það líka, en kveiki sjaldan á þeim sjálf heima hjá mér.Þegar ég var krakki þá horfði ég á íslensku undankeppnina með foreldrum mínum ásamt aðalkeppninni sjálfri í beinni útsendingu.
Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?
Nei, ég hef ekki farið en það væri örugglega mjög gaman.
Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum
Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?
Satt að segja er ég voða lítil Eurovision manneskja en mér finnst hún samt mikilvægur þáttur í okkar menningu. Ég grínast stundum með það að þegar Eurovision og áramótaskaupið eru í sjónvarpinu þá dettur öll umferð á höfuðborgarsvæðinu niður því allir eru að horfa.Ég veit að söngvakeppnin er mikil hátíð hjá sumum.
Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?
Ég man ekki eftir hvenær þau voru fyrst haldin. Fannst meira um eftir að ég flutti á höfuðborgarsvæðið að vinir væru að hittast og horfa saman. Það var ekki mikið um það í sveitinni, a.m.k. ekki heima hjá mér en við gerðum okkur oft dagamun, t.d. vorum með snakk og gos á boðstólum. Ég hef ekki haldið slík partý sjálf og ekki farið í slík partý, mig minnir þó að mér hafi einhvern tímann verið boðið heim til vinkonu eða vina að horfa með þeim. Að vísu hefur fjölskyldan mín, eða hluti af henni, stundum hist og horft saman. Þá er ég að tala um mömmu, systur mínar, mágar og systrabörn.
Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?
Ég er ekki mikið fyrir að halda partý heima hjá mér.
Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?
Ég þekki það ekki.
Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?
Ég þekki það ekki.
Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.
Ég hef ekki heyrt af því nema á sumum vinnustöðum (sjá svar í kaflanum um Eurovision á vinnustöðum).
Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?
Ég þekki það ekki.
Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?
Snakk og ídýfur, gos, bjór, nammi og kannski pizza.
Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?
Ég veit ekki alveg hvernig það er hjá öðrum en ég held að haldið sé meira upp á þá keppni sem Ísland tekur þátt í, enn betra ef við komumst áfram í úrslitakeppnina líka. Að minnsta kosti horfi ég aðallega á þá keppni sem Ísland er í.
Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum
Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?
Nei, ég hef ekki gert það.
Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?
Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?
Hef ekki heyrt af slíkum partýum.
Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum
Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?
Á sumum vinnustöðum veit ég að fylgst er með eða þ.e.a.s. að ekki er beint horft á keppnina saman en það er veðmál í gangi um hvaða lag vinnur. Að vísu hef ég ekki unnið á slíkum vinnustað þar sem slíkt er í gangi.
Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?
Á sumum vinnustöðum veit ég að það er rauðvínspottur í gangi, þeir sem taka þátt koma með rauðvínsflösku (eða hvítvín, rósavín) og setja í pott. Fólk veðjar á hvaða lag vinnur og sá sem rambar á rétt sæti fær pottinn. Ef enginn giskar á rétt sæti þá fá þeir pottinn sem komust næst því að giska á rétt úrslitasæti. Þetta getur oft verið veglegur pottur sem unninn er. Ef fleiri en einn giska á rétt sæti skiptist potturinn á milli þeirra.
Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?
Nei því miður, ég þekki það ekki.
Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu
Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?
Hef ekki gert það en væri alveg til í það. Gæti trúað því að það væri mjög gaman. Þekki nokkrar sem hafa farið á keppnina erlendis og fannst rosalega gaman.
Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?
Kafli 7 af 7 - Annað
Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.
Þó svo ég horfi ekki mikið á keppnina sjálf þá finnst mér hún vera ómissandi þáttur í okkar menningu, kannski vegna þess að ég hún er búin að vera síðan ég man eftir mér. Ég á góðar minningar af samverustundum fjölskyldunnar yfir Eurovision þegar ég var krakki og unglingur og líka á fullorðinsárum.Mér fannst skemmtilegra að horfa á söngvakeppnina þegar hún var bara eitt kvöld í stað þriggja eins og hún er núna. En ég skil vel að það var þörf á að auka við kvöldum og hafa tvær undankeppnir og eitt úrslitakvöld. Annars yrði keppnin svakalega löng þar sem Evrópulöndin eru svo mörg.Eurovisionkeppnin er líka svolítil sérstaða Evrópu sem mér finnst mjög skemmtilegt. Aðrar heimsálfur, að ég best veit, eru ekki með keppnir af þessu tagi. Ég veit að margir erlendir skiptinemar,sem koma frá löndum utan Evrópu, finnst þetta mjög spennandi. Ég var t.d. með skiptinema hjá mér frá Bandaríkjunum 2015-2016 sem fannst mjög gaman að fylgjast með keppninni og gerir það enn ef hún getur.Ég myndi sakna söngvakeppnninar ef hætt yrði með hana.