Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Ártal1965-2020
Spurningaskrá126 Eurovision-hefðir

Núv. sveitarfélagReykjavíkurborg
SýslaGullbringusýsla (2500) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1939

Nánari upplýsingar

Númer2019-1-228
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið6.5.2019/12.4.2020
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar

Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?

Ekkert.


Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?

Man ekki.



Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu

Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?

Litlu.


Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?

Misjafnlega.


Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?

Fylgdist lítið með kynningum.


Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?

Aldrei farið.



Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum

Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?

Lít ekki á þessa hátíð sem hátíð.


Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?

Ég var einu sinni stödd á Spáni með vinnufélögum og fundum þá sjónvarp sem búið var að henda út á götu. Við fórum með það heim og settum í samband og sáum þá að við sáum bara efri hlutan á skjánum. Við horfðum á prógrammið svona! Þegar við fórum að spyrja Spánverjana um hvernig þeim hafi líkað keppnin þá hafði enginn af þeim sem við spurðum horft á hana!
Þetta er eina partíið sem ég man eftir.


Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?

Hafði ekki áhuga.


Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?
Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?

Nei.


Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.

Ekki hugmynd.


Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?

Ekki hugmynd.


Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?

Ekki hugmynd.


Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?

Ekki hugmynd.



Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum

Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?

Ekki tekið þátt.


Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?

Man ekki eftir neinum sérstökum.


Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?

Ekki hugmynd.



Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum

Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?

Hef ekki tekið þátt í neinu af þessu tagi.


Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?

Ekki hugmynd.


Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?

Nei.



Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu

Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?

Þegar við fundum sjónvarpið úti á götu á Spáni.


Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?

Leika í brúðuleikhúsinu Leikbrúðulandi!



Kafli 7 af 7 - Annað

Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.

Hún skiptir engu máli fyrir mig.


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana