126 Eurovision-hefðir
Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar
Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?
Ég held að ég hafi nánast alltaf horft á söngvakeppnina eftir að sjónvarp kom á heimilið.
Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?
Ég man ekki til þess að það hafi verið eitthvað tilstand heima hjá mér.
Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu
Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?
Það breytti engu held ég.
Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?
Já, ég fylgist alltaf með söngvakeppninni.
Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?
Ég er ekkert sérstaklega að leita eftir því að kynna mér lögin fyrirfram.
Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?
Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum
Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?
Kannski ekki hátíð en tækifæri til að gera sér glaðan dag og þá er það sérstaklega aðalúrslitakvöldið.
Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?
Fyrsta Evrovision partí sem ég var í var hjá vinkonu minni þegar Ísland tók þátt í fyrsta skipti. Það var góð stemning til að byrja með en þegar stigagjöfin byrjaði þá dofnaði fljótlega yfir öllu. Við vorum svo agalega sigurviss fyrirfram. Núorðið hittumst við fjölskyldan, ég og bróðir minn og okkar börn grillum saman og skemmtum okkur svo yfir stigagjöfinni hvernig sem hún fer. Oft eru einhverjir fleiri viðstaddir. Þetta þykir hið skemmtilegasta partí. Úrslitin eru á þeim tíma að veðrið er stundum ágætt þannig að þetta er oft fyrsta grill "sumarsins".
Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?
Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?
Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?
Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.
Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?
Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?
Grill matur og tilheyrandi, ekkert flókið samt. Ís á eftir og kaffi. Snakk og kannski popp. Gos og áfengi (léttvín og/eða bjór).
Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?
Evrovision partíið okkar er þegar alþjóðlega keppnin er. Við erum ekkert sérstaklega að halda upp á íslensku keppnina þó maður að sjálfsögðu horfi á.
Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum
Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?
Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?
Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?
Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum
Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?
Á mínum vinnustað er eru nokkrar mikilar áhugamanneskjur um Evrovision þannig að það er fylgst með.
Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?
Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?
Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu
Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?
Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?
Kafli 7 af 7 - Annað
Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.
Ég lít fyrst og fremst á Söngvakeppnina sem afþreyingarefni í sjónvarpi og hún er fín sem slík.