Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Ártal1983-2019
Spurningaskrá126 Eurovision-hefðir

Núv. sveitarfélagAkureyrarbær
SýslaEyjafjarðarsýsla (6500) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1953

Nánari upplýsingar

Númer2019-1-216
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið6.5.2019/28.5.2019
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar

Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?

Man ekki hvenær var farið að senda í beinni útsendingu. En fyrstu árin horfði og hlustaði ég á ásamt heimilisfólki.


Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?

Ekki annað en allir sátu saman í stofu.



Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu

Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?

Veit ekki.


Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?

Fyrstu árin fylgdist ég með, en svo komu trúlega meira en 10 ár sem ég fylgdist ekki með, var ekki með sjónvarp og áhuginn var ekki til staðar. Nú siðari ár hef ég fylgst með sum árin en þá bara í loka keppni.


Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?

Nei, aldrei gert.


Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?

Nei.



Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum

Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?

Nei.


Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?

Veit lítið um það hérlendis, var þó eitt árið í Noregi þar kom fólk saman í heimahúsi ásamt góðum mat ofl.


Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?

Vantar áhugann.


Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?

Nei.


Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?

Veit ekki.


Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.

Nei.


Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?

Nei, ha ha .


Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?

Man ekki.



Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?

Held það sé meira haldið upp á alþjóðlegu keppnina.



Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum

Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?

NEI.



Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?

Nei.



Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?

Nei.



Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum

Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?

Veit ekki, ég hef ekki orðið vör við það á mínum vinustöðum.


Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?

Veit ekki.


Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?

Nei.




Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu

Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?

Nei.


Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?

Kafli 7 af 7 - Annað

Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.

Finnst hún ekki skemmtileg, eða neitt athyglisverð. Líkist meira skrautsýningum, sem á enga tengingu við söng.


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana