126 Eurovision-hefðir
Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar
Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?
Nokkuð. Sigurlögin urðu stundum vinsæl.
Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?
Nei.
Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu
Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?
Það fylgir því viss spenna að fylgjast með keppni í beinni útsendingu.
Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?
Eins mikið og ég get, helst öll kvöldin.
Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?
Ég reyni að sjá kynningarþætti í aðdraganda keppninnar, einkum til að sjá myndböndin við lögin, þau eru oft mjög flott.
Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?
Nei.
Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum
Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?
Þau kvöld sem íslenska liðið keppir er gjarnan fagnað hjá okkur með góðum mat, fjölskyldan sameinast og hefur sterkar skoðanir.
Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?
Þegar Ísland tók fyrst þátt var haldið Gleðibankapartí sem vinum var boðið í.
Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?
Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?
Í Gleðibankapartíinu var húsið skreytt með íslenskum fánum, blöðrum og fleiru.
Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?
Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.
Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?
Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?
Popp og snakk með ídýfu, grænmeti með ídýfu.
Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?
Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum
Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?
Nei.
Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?
Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?
Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum
Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?
Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?
Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?
Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu
Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?
Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?
Kafli 7 af 7 - Annað
Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.
Mér finnst umgjörðin óþarflega stór, sviðin of stór, mætti skala þetta niður.
Mér finnst að það þurfi samt að samþykkja að þetta er ekki lengur keppni um lögin sjálf heldur keppni í að gera þriggja mínútna sjónvarpsatriði.
Kynnar eru yfirleitt óþolandi. Mætti ekki sleppa þeim?