Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Ártal1969-2019
Spurningaskrá126 Eurovision-hefðir

ByggðaheitiHvanneyri
Sveitarfélag 1950Andakílshreppur
Núv. sveitarfélagBorgarbyggð
SýslaBorgarfjarðarsýsla (3500) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 1955

Nánari upplýsingar

Númer2019-1-210
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið6.5.2019/17.5.2019
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar

Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?

Ég man eftir að ég fylgdist með Eurovison í útvarpi, a.m.k þeim lögum sem unnu alveg frá 1969.Síðan þegar var farið að sýna hana í sjónvarpinu eftir keppnina þá var vaninn að allir í fjölskyldunni fylgdust með. Við vorum þá 6 systkyni heima og foreldrar okkar. Oft keypt kók í gleri til að njóta.


Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?

Nei, það var ekki haldið upp á hana fyrr en eftir að sjónvarpið fór að sýna hana. Vorum mjög spennt að horfa.



Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu

Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?

Það varð miklu meiri spenna að fylgjast með þegar sent var út beint. Sérstaklega eftir að Ísland fór að taka þátt 1986. Meiri háttar skemmtun. Þegar við eignuðumst vídiótæki var keppnin tekin upp og horft aftur og aftur.


Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?

Fylgist alltaf með og öll kvöld en þá er heldur minni áhugi á aðalkeppninni þegar Ísland er ekki með.


Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?

Fylgist með undirbúningsþáttum ef ég mögulega get en ég fresta ekki öðrum verkefnum ef þau lenda á sömu dögum. Ég fylgist lítið með eftir keppnina nema ef lögin verða vinsæl þá heyri ég þau. Það er gaman að fylgast með spekingum spá fyrir um úrslitin.


Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?

Hef ekki haft tækifæri til að sjá það.



Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum

Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?

Það er svolítið hátíðlegt við Eurovision, sérstaklega aðalkeppniskvöldið og eitt þannig kvöld kynntist ég manninum mínum í gegnum vinafólk.


Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?

Ég hef farið í partí, fyrst 1986 og oft síðan þá. Ég hef haldið þannig partý og þá eru það börn barnabörn og bestu vinir, 1 hjón eða 2.


Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?
Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?

Ég kannast ekki við skreytingar.


Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?

Það er engin venja.


Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.

Það er stundum veðjað um hvaða lag vinnur en mest í gamni, það er kanski einn bjór í verðlaun eða nammi.


Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?

Kannast ekki við það.


Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?

Pizza alltaf. Stundum bæði kvöldin sem Ísland er að keppa og líka úrslitaköldið. Alltaf heimagerð. Við erum líka með pizzu í íslensku forkeppninni.Forkvöldin eru óáfengir gosdrykkir með en úrslitakvöldið er oftast smávegis áfengi, svona rétt í eina tá.


Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?

Það er meira spennandi að horfa á íslensku keppnina og þá hefur maður meiri skoðanir bæði á flytjendum og lögum. Það er ekki partý þegar íslenska keppnin er.



Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum

Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?

Nei.


Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?

Pálmi Gunnarsson er minn uppáhalds sögvari.


Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?

Þekki þau ekki.



Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum

Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?

Mikið rætt í matartímum um keppnina og lögin, sérstaklega íslensku keppnina. Skoðanir eru eins margar og vinnufélagarnir. Í ár, 2019, þá var áberandi aldursmunur á því hvernig vinnufélögunum fanst sigurlagið sem keppir fyrir Íslands hönd. Eldra fólk 50+ var ekki hrifið, skilur ekki atriði og finnst það ekkert skemmtilegt en ætlar samt að horfa á úrslitakvöldið. Allir spenntir yfir því að Ísland er með úrslitakvöldið. Yngra fólkið aftur á móti finnst lagið frábært og flutningurinn til fyrirmyndar.


Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?

Vinnufélagar veðja ekki.


Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?

Nei, þekki það ekki.



Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu

Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?

Nei.


Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?

Kafli 7 af 7 - Annað

Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.

Mér finnst söngvakeppnin mikilvæg. Spennandi og kýs oftast mitt uppáhald í símakosningunni. Hún átti þátt í hjónabandi mínu svo ég get ekki annað en haldið upp á hana. Eitt sinn var 12 ára dóttir mín í dómnefndinni í útvarpshúsinu. Sótti um þegar útvarpið auglýsti eftir krakka/unglingi til að taka sæti í dómnefndinni. Ég man þegar hringt var í mig til að segja henni að hún hafi verið valin að ég fór í skólann til hennar til að segja henni þetta. Þá var mikil gleði í skólanum þann daginn. Hún fékk líka laun fyrir dómarastörf.


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana