126 Eurovision-hefðir
Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar
Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?
Ég fylgdist öðru hverju með henni.
Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?
Ekki svo ég viti til.
Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu
Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?
Fyrstu árin voru flestir spenntir fyrir keppninni en svo fór að draga úr spenningnum.
Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?
Ég hef ekki alltaf fylgst með keppninni en hef sjónvarpið yfirleitt opið ef ég er heima.
Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?
Já. Ég hef stundum fylgst með kynningarþáttum. Þar koma fram skemmtilega ólík sjónarmið.
Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?
Nei.
Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum
Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?
Ég lít ekki á keppnina sem hátíð.
Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?
Ég hef stundum verið boðin til vina eða frændfólks lokakvöldið en það er engin ákveðin regla.
Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?
Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?
Nei.
Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?
Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.
Nei.
Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?
Nei.
Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?
Venjulegan helgarmat.
Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?
Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum
Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?
Nei.
Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?
Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?
Nei.
Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum
Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?
Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?
Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?
Nei, en ég veit að leikskólabörn sungu Pollapönk.
Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu
Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?
Nei.
Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?
Kafli 7 af 7 - Annað
Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.
Keppnin skiptir engu máli fyrir mig en mér finnst allt í lagi að halda hana.
Það hafa mörg góð lög komið fram í keppninni gegnum tíðina þótt mörg gleymist fljótt.