Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Ártal1975-2019
Spurningaskrá126 Eurovision-hefðir

ByggðaheitiBúðardalur
Sveitarfélag 1950Laxárdalshreppur
Núv. sveitarfélagDalabyggð
SýslaDalasýsla (3800) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Kvenkyns / 0

Nánari upplýsingar

Númer2019-1-204
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið6.5.2019/13.5.2019
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar

Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?

Horfði á hana flest árin, fór eftir stöðu sauðburðar.


Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?

Nei, ekkert sérstaklega.



Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu

Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?

Nær engu.


Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?

Happa og glappa aðferðin hvað er fylgst vel með, stundum öll kvöldin, stundum ekkert.
Staða sauðburðar hefur hér líka áhrif.


Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?

Hætti að horfa á kynninguna eftir að samnorræni þátturinn hætti - húmorinn hvarf og fólk tók að þetta allt of alvarlega, húmorslaust og upptekið af glamúr.


Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?

Aldrei farið og þyrfti að bjóða góðan pening til að ég nennti því.



Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum

Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?

Nei, of tilgerðarlegt og langt frá því að vera minn tónlistarsmekkur.


Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?

Man ekki hvenær þessi partí/boð hófust. Hef eingöngu farið í fámenn fjölskyldu/góðra vina samkomur.Aldrei haldið þannig partí. Ég og vinkona mín komum saman á tímabili og kenndum dætrum hennar undirstöðuatriðin í að dæma atriðin, þ.e. sungið á eigin tungumáli, fólk klætt að viti og stöðluð júróvisjónlög hallærisleg!


Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?

Er lítil partí manneskja að upplagi og finnst það ekki gott tilefni til mannfögnuðar að sitja og glápa á sjónvarp!


Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?

Nei.


Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?

Nei.


Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.

Nei.


Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?

Nei.


Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?

Snakk og gos/saft, kannski ís. Oftast börn í þessum samkomum sem ég hef verið í.


Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?

Alþjóðlegu keppnina og þá lokakvöldið.Yfirleitt komið fram yfir háttatíma hjá boðsgestum og/eða tími á að fara í fjárhúsin á vaktina eða helmingur gestana sofnaður eftir sauðburðarstörfin.



Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum

Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?

Nei.


Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?

Aldrei farið.


Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?

Nei.



Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum

Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?

Veit það ekki, læt mig yfirleitt hverfa þegar talið berst að söngvakeppninni og misgáfulegar dómar látnir falla.
Nema ég sé í stríðniskasti og snúi út úr öllu og skapa almennan pirring!!!


Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?

Nei.


Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?

Nei.



Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu

Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?

Nei.


Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?

Ekki farið.



Kafli 7 af 7 - Annað

Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.

Ekki viss um að ég saknaði hennar þó hún hætti, en hef lúmskt gaman af hvað hægt er að taka þetta alvarlega.

Skemmtilegasti hluti keppninnar er óneitanlega stigatalningin, sem hefur óneitanlega tapað miklum sjarma eftir að hætt hefur verið að lesa upp öll stigin frá 1 og uppúr á helst þremur tungumálum.


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana