Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Ártal1970-2019
Spurningaskrá126 Eurovision-hefðir

ByggðaheitiHvolsvöllur
Sveitarfélag 1950Hvolhreppur
Núv. sveitarfélagRangárþing eystra
SýslaRangárvallasýsla (8600) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Karlkyns / 1954

Nánari upplýsingar

Númer2019-1-201
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið6.5.2019/12.5.2019
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 7 - Fyrir daga beinnar útsendingar

Í hve miklum mæli fylgdist þú með söngvakeppninni áður en farið var að senda hana beint út á Íslandi?

Fremur lítið, man þó eftir því þegar sú írska vann, Dana minnir mig hún héti, eitthvað í kringum 1970.


Var haldið upp á keppnina í þá daga? Hvernig, ef svo var?

Ekki mann ég eftir neinu tilstandi



Kafli 2 af 7 - Áhorf í beinni útsendingu

Hverju breytti það fyrir þig að farið var að senda söngvakeppnina út beint?

Það breytti engu.


Hve mikið hefur þú fylgst með keppninni í gegnum tíðina? Er fylgst með öll kvöldin?

Ekkert síðustu tuttugu árin, en eitthvað minnir mig að ég hafi lent í partýjum fyrir það, ekkert minnistætt umfram önnur partý.


Hve löngu fyrir keppnina er byrjað að fylgjast með? En eftir keppnina? Fylgist þú t.d. með kynningu á keppendum eða þáttum þar sem spekingar spá fyrir um úrslitin?

Ég fylgist nákvæmlega ekkert með og finnst þetta bara bull að standa í þátttöku.


Nokkur undanfarin ár hefur íslenska úrslitakeppnin verið send beint út frá Háskólabíó, hefur þú farið og ef svo er hvernig upplifun er það?

Það hefur aldrei hvarflað að mér.



Kafli 3 af 7 - Keppnin í heimahúsum

Lítur þú hugsanlega á sönglagakeppnina sem hátíð og ef svo er af hverju? Á það við einhvern sérstakan dag keppninnar fremur en annan? Hvaða dag?

Lít ekki á keppnina.


Margir eru með Evrovision-partí eða -boð í heimahúsum, hvenær manst þú fyrst eftir að farið var að halda þau? Hefur þú sjálf(ur) haldið þannig partí eða tekið þátt í þeim? Hverjum er boðið?

Ég bara man ekki til þess að hafa farið eftir fertugt.


Ef að þú heldur ekki boð eða partí, hvers vegna gerir þú það ekki?

Ítreka áhugaleysi mitt.


Kannast þú við að fólk skreyti hýbýli sín að utan eða innan í tilefni af keppninni? Hvernig skreytingar eru þetta, ef svo er? Hve lengi hafa þannig skreytingar tíðkast?

Ég bara veiti slíku ekki athygli ef það tíðkast.


Er farið í leiki (hvaða leiki), spurningakeppni eða sungið (hvað er spurt um og hvaða lög eru helst sungin)?

xox


Þekkir þú að veðjað sé um hvaða lag vinnur og hvað er í verðlaun? Ef svo er, segðu frá því hvernig þetta gengur fyrir sig.

Þekki ekki.


Kannast þú við að höfð séu þemu í Eurovision-partíum? Hvaða þemu ef svo er? En að fólk klæðist búningum og þá hvernig búningum?

Veit ekki.


Hvaða veitingum (mat og drykk) manst þú eftir að boðið hafi verið upp á?

Brennivín og bland.


Hvort er haldið meira upp á íslensku forkeppnina eða alþjóðlegu keppnina að þínu mati? Eru haldin partí í tilefni af báðum keppnunum og hvaða munur er á þeim, ef einhver? Hve lengi stendur gleðin eftir að keppninni lýkur?

Veit ekkert.



Kafli 4 af 7 - Partí á skemmtistöðum

Hefur þú farið í Eurovision-partí á börum eða skemmtistöðum? Hvaða stöðum? Hvað er gert í þessum partíum?

0


Hvaða skemmtikröftum manst þú eftir sem komið hafa fram? Áttu þér einhvern uppáhalds skemmtikraft?

0


Kannast þú við And-Eurovision-partí? Hvar hafa þau verið haldin og hvað er gert? Hefur þú mætt? Þekkjast slík partí í heimahúsum?

Veit ekki.



Kafli 5 af 7 - Eurovision á vinnustöðum

Er fylgst með söngvakeppninni á vinnustöðum? Hvernig, ef svo er?

0


Veðja vinnufélagar um hvaða lag vinnur? Hvernig ganga þessi veðmál fyrir sig,ef svo er, og hvað er í verðlaun?

0


Getur þú sagt frá Eurovision hefðum á leikskólum?

0



Kafli 6 af 7 - Á erlendri grundu

Hefur þú sótt keppnina heim í útlöndum? Hvernig upplifun var það og hvað er þér helst minnisstætt?

0


Hvað annað hafðir þú fyrir stafni í ferðinni en að fylgjast með keppninni?

0



Kafli 7 af 7 - Annað

Segðu frá því sem þér finnst um söngvakeppnina. Hvaða máli skiptir hún fyrir þig? Ef að þú heldur ekki upp á keppnina er eigi að síður mikilvægt að fá upplýsingar um afstöðu þína til hennar.

Tilgangslaust bull, en ef að einhver hefur áhuga þá er það mér að meinalausu, utan hvað mér finnst þetta mikil sóun og fáránleiki.


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana