129 Ísbjarnarsögur
Kafli 1 af 5 - Ísbjarnarkomur
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei, aldrei
Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Aðeins í fréttum... í útvarpi og blöðum. Lýsingarnar voru þá yfirleitt þannig að við, sveitafólk fyrir sunnan, fylgdumst með full af spenningi.
Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Líklega hrekjast þeir að landinum með hafís.
Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Lítið hægt að gera annað en að skjóta þá. Allt of mikið mál að veiða lifandi og flytja til heimkynna, og hættulegt að leyfa þeim að rápa um landið leitandi að fæðu.
Kafli 2 af 5 - Samskipti ísbjarna og manna
Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Nei, ekki heyrt um það, en þykir þó líklegt.
En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Aðeins í gömlum sögusögnum, ekkert sérstakt sem ég man.
Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Svo sem engar, þetta er svo fjarlægt okkur sveitafólki á Suðurlandi, en spennandi samt að heyra í fréttum hvernig gengur að fanga þá.
Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Yfirleitt skotnir held ég......ekki annað um það að segja.
Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Nei.
Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Nei
Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei
Kafli 3 af 5 - Ísbjarnar-örnefni
Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Kann ekkert slíkt og veit ekki til að til sé hér í kring. Húnaflói fyrir norðan hlýtur þó að vera nefndur eftir bjarnarhúnum?
Kafli 4 af 5 - Þjóðlegur fróðleikur um ísbirni
Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Kann engar slíkar sögur en hef lesið söguna um „Nonna og Manna", þar sem sagt er frá heimsókn bjarnarins.
Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Nei.
Kafli 5 af 5 - Ísbirnir í myndlist
Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Þekki ekkert slíkt.
Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Ég eignaðist fyrir mörgum mörgum árum pínulitla postulínsstyttu af birnu og þremur húnum. Líklega er hún nú orðin meira en sextíu ára og dóttir mín á hana. Birnan heil og húnarnir allir vísir. Þetta er það sem ég og mín fjölskylda hefur komist næst því að sinna bjarndýrum.