Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
EfnisatriðiÍsbjarnarkoma, Ísbjörn
Ártal2020
Spurningaskrá129 Ísbjarnarsögur

Núv. sveitarfélagReykjavíkurborg
SýslaGullbringusýsla (2500) (Ísland)
LandÍsland
Kyn / Fæðingarár
heimildarm.
Karlkyns / 1939

Nánari upplýsingar

Númer2020-2-23
AðalskráÞjóðhættir
UndirskráSpurningaskrár - Svör
Sent/Móttekið16.7.2020/22.7.2020
TækniTölvuskrift

Kafli 1 af 5 - Ísbjarnarkomur

Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?

Neei.


Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?

Fréttir í fjölmiðlum.


Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?

Sennilega villst einhversstaðar eða orðnir ruglaðir. Enga sérstaka merkingu.


Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?

Ekki verður komist hjá að aflífa þá.



Kafli 2 af 5 - Samskipti ísbjarna og manna

Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?

Ekki heyrt um það.


En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.

Þeir drepa sér til matar eins og önnur rándýr.


Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?

Engar tilfinningar.


Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?

Að sjálfsögðu. Flestir hafa verið skotnir, sumir stoppaðir upp.



Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?

Þekki ekki til þess.


Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?

Forðast þá.



Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?

Aldrei.



Kafli 3 af 5 - Ísbjarnar-örnefni

Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?

Víða á norðurslóðum eru örnefni kennd ísbjörnum. Ég kann ekki frásagnir um tilurð þessarra örnefna.



Kafli 4 af 5 - Þjóðlegur fróðleikur um ísbirni

Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?

Ekkert af þessu er mér hugleikið og hef ekkert um það hugsað.



Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?

Nei.



Kafli 5 af 5 - Ísbirnir í myndlist

Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.

Einhversstaðar hef ég séð myndir af ísbjörnum, þekki ekki höfundana og á engar sjálfur.


Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?

Nei.


Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana