129 Ísbjarnarsögur
Kafli 1 af 5 - Ísbjarnarkomur
Hefur þú, eða einhver sem þú þekkir, orðið persónulega var/vör við ísbirni hér á landi? Getur þú sagt frá þeirri reynslu, m.a. hvar sást eða heyrðist til dýranna, hvenær (hvaða ár), hvernig þau hegðuðu sér og hvernig þú eða aðrir brugðust við?
Nei
Hefur þú haft afspurn af ísbjarnarkomum (þ.e. án þess að hafa verið á staðnum)? Ef svo er, hvernig fréttir þú af þeim og hvernig var þeim lýst?
Já, í fjölmiðlum
Af hverju telur þú að ísbirnir komi til Íslands? Hefur það ákveðna merkingu í þínum huga? Hvaða merkingu?
Hafa lent í aðstæðum sem hafa borið þá frá heimkynnum
Hvað finnst þér að gera eigi við ísbirni sem koma til landsins?
Fara að lögum um dýravernd en nota heilbrigða skynsemi og styðjast við gagnreynda þekkingu (ef það fer saman?)
Kafli 2 af 5 - Samskipti ísbjarna og manna
Hefur þú heyrt talað um að ísbirnir forðist manneskjur? Hvernig, ef svo er?
Já. Ágiskun að það fari eftir svengd þeirra
En að þeir drepi fólk og skepnur eða önnur dýr? Segðu frá því sem þú veist um þetta.
Heyrt um það í sögnum en þeir sem hafa komið nýlega hafa ekki gert neitt af því
Hvaða tilfinningar vekja ísbjarnarkomur hjá þér eða öðrum í kringum þig (t.d. spenna, ótti eða hrifning)? Af hverju?
Áhuga en ekki spennu nema þegar ég fór í veiðitúr á Skaga rétt eftir að ísbjörn hafði sést þar (og verið fangaður). Samt ekki meira en svo að ég svaf ágætlega í tjaldinu mínu. Vaknaði um nóttina við þrusk fyrir utan og hugsaði: skyldi þetta vera ísbjörn en sofnaði svo aftur
Kannast þú við frásagnir um ísbjarnardráp? Hvaða aðferðir voru notaðar við drápið? Komu önnur dýr við sögu? Hvað var gert við skrokkinn og feldinn?
Það muna kannski enn margir eftir Grímseyjarbirninum (þarna skaut ég og þarna Siggi bróðir, grínmynd í Mogganum)
Þekkir þú til uppstoppaðra ísbjarna eða annars konar leifa af þeim? Hvaða leifa og hvar eru þær varðveittar? Hvar og hvernig drápust þessi dýr?
Veit ekki
Þekkir þú einhver ráð eða aðferðir til að vernda sig gegn ísbjörnum? Hvaða úrræði?
Hafa byssu meðferðis. Síðan hefur maður heyrt að hávaði gagnist til að hræða og líka að þeim lítist illa á allt sem nær hátt í loft upp þótt það sé bara stafur
Hefur þú heyrt um vinsamleg samskipti ísbjarna og manna? Hvernig lýsa þau sér, ef svo er?
Nei
Kafli 3 af 5 - Ísbjarnar-örnefni
Þekkir þú einhver bjarndýrs-, ísbjarnar- eða hvítabjarnar- örnefni? Viltu telja þau upp og hvar á landinu þau eru? Hvaða frásagnir kannt þú um þessi örnefni?
Ekki á mínum heimaslóðum (Axarfjörður)
Kafli 4 af 5 - Þjóðlegur fróðleikur um ísbirni
Ýmsar sögur og sagnir um ísbirni eru þekktar hér á landi. Segðu frá því helsta sem þér er kunnugt um þetta efni. Frásögnin má gjarnan vera löng og ýtarleg. Hvað hefur þú t.d. heyrt um að það boði ógæfu að drepa ísbirni eða að þeir séu menn í álögum? En að ísbirnir skilji mannamál? Hvað boðar það að dreyma ísbjörn? Þekkir þú frásagnir um samskipti ísbjarna og ófrískra kvenna? Hvað er „bjarnylur“? Getur þú nefnt dæmi um nafngjöf sem tengist þjóðtrú um ísbirni (Björn, Bjarni t.d.)? Hvaða önnur trú eða trúarviðhorf tengjast þeim?
Það er til fjöldinn allur af gömlum sögum um drápsfýsn ísbjarna, að þeir hafi ráðist inn í hýbýli (torfkofa) og elt fólk sem hafi sloppið vegna þess að björninn óttaðist broddstafi ef fólk var svo heppið að vera með einn slíkan. Stingur heldur í stúf við reynslu af þeim björnum sem hafa komið á land upp á síðkastið.
Mig hefur dreymt ísbjarnardraum: það var þannig að við, ég og maðurinn minn vorum stödd í snjólandslagi, allt á kafi en smá bútur af girðingu sást upp úr snjónum fyrir framan okkur. Hinum megin við þennan gaddavír sem rétt sást í stóð ísbjörn. Sonur okkar ungur var með okkur. Við vorum smeyk í draumnum en í honum vissum við samt að við vorum óhult okkar megin við girðinguna. Allt í einu stekkur barnið frá okkur og hleypur yfir til ísbjarnarins sem rís upp á afturfæturna og grípur utan um strákinn. Við öskruðum af öllum mætti en síðan rífur strákurinn sig lausan að því virðist án fyrirhafnar og hleypur til okkar. Við spurðum hvers vegna hann hafi gert þetta og hann svaraði: ég heyrði ekki til ykkar.
Draumurinn var svo ljóslifandi að þegar ég vaknaði upp af honum varð ég steinhissa að sjá manninn minn sofandi við hliðina á mér eftir öll öskrin.
Ég held sjálf að draumurinn vísi til langvarandi fíkniefnaneyslu þessa sonar okkar sem gerði það að verkum að hann var ábyggilega stundum í talsverðri lífshættu en hefur komist frá háskanum að því að virðist tiltölulega óskaddaður.
Annars segja bækur að ísbirnir tákni valdsmenn og sonurinn hefur vissulega sloppið tiltölulega vel að því leyti líka
Þekkir þú vísur, brandara eða fleira í þeim dúr um ísbirni? Geturðu sagt frá þessu?
Nei
Kafli 5 af 5 - Ísbirnir í myndlist
Þekkir þú málverk eða önnur listaverk af ísbjörnum? En veggskreytingar eða veggjakrot af ísbjörnum? Hvar á landinu eru þessi verk? Hverjir eru höfundar þeirra? Átt þú sjálf(ur) listaverk af ísbirni? Þú getur valið um að lýsa þessum listaverkum eða að senda okkur ljósmynd(ir) af þeim á vefsíðunni sarpur.is. Einnig má notast við netfangið thjodhattasafn@thjodminjasafn.is.
Nei
Hefur þú í fórum þínum aðra gripi, muni eða myndir sem tengjast ísbjörnum? Hvað er hér helst um að ræða, ef svo er?
Nei