Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Ljósmyndari/Höf.Ólafur Magnússon 1889-1954
MyndefniAlþingi, Dómkirkja, Gata, Íbúðarhús, Miðbær, Yfirlitsmynd
Ártal1925-1930

StaðurVonarstræti
ByggðaheitiKvosin
Sveitarfélag 1950Reykjavík
Núv. sveitarfélagReykjavík
SýslaGullbringusýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

NúmerHL-Póstk-4
AðalskráMynd
UndirskráAlm. myndaskrá, Þjóðlífsmyndasafn
Stærð9 x 14 cm
GerðPóstkort - Svart/hvít ljósmynd
GefandiElín Frigg Helgadóttir 1934-

Lýsing

Horft yfir Vonarstræti og Kvosina í Reykjavík ofan úr turni slökkviliðsins við Tjarnargötu. Fremst eru hús á uppfyllingu út í Tjörnina, þar á meðal Bárubúð (Báran) sem Sjómannafélagið Báran lét reisa um aldamótin 1900 á uppfyllingu í norðvesturenda Tjarnarinnar þar sem hið nýja ráðhús Reykjavíkur stendur nú. Eftir að Báran missti húsið lenti það í einkaeign en um 1930 komst það í eigu KR sem notaði það sem íþróttahús. Á stríðsárunum hafði setuliðið bækistöð í Bárunni, en þá kom þar upp eldur og brann húsið til kaldra kola.

Þetta aðfang er í Skógasafni. Heildarfjöldi gripa í safninu er um 15.000. Um 10.000 gripir hafa verið skráðir í Sarp sem er um 70% safnkostsins. Um er að ræða fullnaðar-skráningu án mynda og upplýsinga um geymslustað. Jafnframt er ætlunin að skrá geymslustað og ljósmynda gripi og setja inn í Sarp. Það er ærið verk og ræðst af fjárhagsstöðu safnsins. Um 5.000 ljósmyndir hafa verið handskráðar.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.