Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurKarl Kerúlf Einarsson Dunganon 1897-1972
VerkheitiOracles 35
Ártal1946-1960

GreinMálaralist - Blönduð tækni
Stærð19 x 12,5 cm

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-3626
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá, Dánargjöf Karls Einarssonar Dunganons

EfniFernis, Gvasslitur, Litkrít , Pappír, Vaxlitur
AðferðTækni,Málun
HöfundarétturListasafn Íslands , Myndstef

Sýningartexti

Myndverkin í myndröðinni Oracles (véfréttir) gerði Dunganon við ljóðabálk sinn Oracles of St. Kilda. Eru þau í heild um 250, en 217 verk úr þessari myndröð eru varðveitt í Listasafni Íslands. Verkin eru unnin á tímabilinu 1946–1960 og er stærð myndanna ávallt hin sama, 19 x 12,5 cm, og er hver mynd stimpluð og númeruð. Dunganon notar margvíslega liti, byrjar oft með vaxlitum og skefur síðan í eða bætir ofan á með gvass- og tússlitum. Útlínan er jöfnum höndum með ljósum eða dökkum lit. Myndefnið er fjölbreytt: dýr og furðuverur, spúandi eldfjöll, fagrar konur og fengsælir fiskimenn. Myndsviðið er þröngt, formin oft snúin og undin, litirnir skærir og tjáningin rík og fjörug. Dunganon taldi sig sjá inn í aðra og huldari heima og tjáir oft eins konar sýnir eða drauma, þó að oft séu hversdagsleg störf fólks eða athafnir líka myndefni hans. Skreytið er aldrei langt undan og myndirnar ávallt frásagnarkenndar og ævintýralegar.

 

The works in Dunganon’s Oracles series accompany his poetry collection Oracles of St. Kilda. They number about 250 in total, of which 217 are in the collection of the National Gallery of Iceland. Made between 1946 and 1960, they are all the same size, 19 x 12.5 cm, stamped and numbered. Dunganon uses a range of colour media, often beginning with wax crayon, which may then be scraped, or overlaid with gouache and tusche. Outlines may be in light or dark shades. The themes of the pictures span a diverse range: animals and fantastical creatures, erupting volcanoes, beautiful women and successful fishermen. The images are tightly framed, the forms often twisted and contorted, the hues bright and the expression rich and vibrant. Dunganon believed he could see into other, hidden, worlds, and in his art he often depicts visions or dreams, although his subjects also include more mundane themes of life and work. But the decorative is a constant feature, and his pictures invariably tend toward the narrative, with a fantastical ambiance.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.