Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Vantar lýsingu


Landfræðileg staðsetning


Ljósmyndari/Höf.Sigurður Guðmundsson 1900-1986
MyndefniAlmenningsgarður, Bekkur, Blómabeð, Myndastytta, Tjörn
Nafn/Nöfn á myndBertel Thorvaldsen 1770-1844
Ártal1950-1960

StaðurHljómskálagarður
Annað staðarheitiSóleyjargata 2
Sveitarfélag 1950Reykjavík
Núv. sveitarfélagReykjavíkurborg
SýslaGullbringusýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

NúmerSiG3-8444
AðalskráMynd
UndirskráSigurður Guðmundsson 3 (SiG3)
GerðSvart/hvít negatíf
GefandiInga Hrönn Pétursdóttir 1951-
HöfundarétturInga Hrönn Pétursdóttir 1951-

Lýsing

Hljómskálinn og styttan af Bertel Thorvaldsen.

Fyrsta útilistaverkið sem reist var í Reykjavík er bronsafsteypa af sjálfsmynd Thorvaldsens sem var afhjúpuð með mikilli viðhöfn á Austurvelli í Reykjavík á afmælisdegi listamannsins, 19. nóvember árið 1875. Var verkið gjöf borgarstjórnar Kaupmannahafnar til íslensku þjóðarinnar í tilefni þúsund ára byggðar hér á landi árið 1874. Réðu ættartengsl valinu á gjöfinni og þótti Íslendingum mikið til þess koma að eignast verk eftir þennan fræga listamann sem var af íslensku bergi brotinn. Verkið vann Thorvaldsen í Danmörku að áeggjan Stampe barónsfrúar, en að sögn var það honum þvert um geð að móta sjálfsmynd. Í verkinu sjáum við myndhöggvarann við vinnu sína með hamar og meitil í hönd. Virðist hann hafa tekið sér hvíld frá störfum og hallar sér upp að mynd sinni af Vonargyðjunni.

Árið 1931 varð sjálfsmynd Thorvaldsens að víkja af Austurvelli fyrir styttunni af Jóni Sigurðssyni, eftir Einar Jónson, og var hún þá flutt í Hljómskálagarðinn þar sem myndhöggvarinn horfir af sínum háa stalli út yfir Tjörnina.  Sjálfsmynd Thorvaldsens með Vonargyðjunni er einnig að finna í Central Park í New York og í íbúð myndhöggvarans Einars Jónssonar, á efstu hæð Listasafns Einars Jónssonar, má sjá þessa mynd sem rúmlega 30 cm háa gifsmynd.


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana