Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
HeitiSkautar
Ártal1920-1960

Sveitarfélag 1950Dalvíkurhreppur
Núv. sveitarfélagDalvíkurbyggð
SýslaEyjafjarðarsýsla (6500) (Ísland)
LandÍsland

Hlutinn gerðiMarinó Eðvald Þorsteinsson
GefandiMarinó Eðvald Þorsteinsson 1920-2006

Nánari upplýsingar

Númer1218
AðalskráMunur
UndirskráAlmenn munaskrá
EfniJárn, Leður, Viður
TækniTækni,Trésmíði

Lýsing

Marinó Þorsteinsson smíðaði viðinn í skautana. Skautajárnið gengur upp í rauf á viðnum sem liggur eftir því endilöngu. Fest við viðinn með nagla að aftan. Að framan er járnið í boga. Bindingar eru úr leðri og ganga á 2 stöðum í gegnum viðinn, að framan við tána og einnig að aftan aðeins framan við hælinn. Þær ganga aftur fyrir hælinn og í kross yfir ristina.

Þetta aðfang er í Byggðasafni Dalvíkurbyggðar. Safnið varðveitir um 7000 gripi og eru skráðir gripir í Sarp um 3000. Áætlað er að um 40% safngripa sé kominn í stafrænan búning. Myndir eru af nánast öllum skráðum gripum í Sarpi. Fastur starfskraftur sér um skráningu í Sarp í 30% starfi. Texti er ekki prófarkalesinn af öðrum aðila en þeim sem skráir. Áætlað er að skrá gripi safnsins hægt og bítandi næstu ár.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.