Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurJúlíana Sveinsdóttir 1889-1966
VerkheitiÁn titils
Ártal1957

GreinTextíllist, Textíllist - Myndvefnaður
Stærð141,5 x 93 cm
EfnisinntakAbstrakt

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-6315
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniUll
AðferðTækni,Textíltækni,Vefnaður
HöfundarétturJúlíana Sveinsdóttir-Erfingjar 1889-1966, Myndstef

Sýningartexti

Þetta stóra veggteppi er gott dæmi um frjálsa listsköpun Júlíönu Sveinsdóttur í ull. Geómetrísk form falla vel að eðli vefjar, lóðréttri uppistöðu og láréttu ívafi sem Júlíana nýtti sér jafnframt því að þróa lífræn form í vefinn. Á gulum grunni liðast svartur renningur með hvítum deplum horna á milli. Aftan við hann eru tveir láréttir litafletir, grábrúnn og brúnrauður, sem gefa verkinu stöðugleika en grátt og hvítt hringform ljær verkinu léttleika sem vegur salt á móti láréttu línunum. Verkið var keypt í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Júlíönu í Listasafni Íslands árið 2003. Ári síðar gaf Leifur Sveinsson safninu fjölmargar skissur og teikningar úr fórum Júlíönu frænku sinnar. Á einni skissunni má sjá að hún hefur upphaflega ætlað að hafa gráa hringinn í sama lit og er í neðri láréttu línunni, en útkoman varð önnur.

Júlíana var metnaðarfullur listmálari og varð árið 1917 önnur íslenska konan sem lauk námi frá Konunglega Listaháskólanum í Kaupmannahöfn. Sjálflærð hóf hún að vefa stuttu síðar til þess að hafa í sig og á en það vatt upp á sig. Íslenska ullin varð hennar sérgrein ásamt jurtalitun þráðarins. Til að byrja með óf hún voð sem notuð var í hönnunarvörur, svo sem fatnað, gardínur, húsgagnaáklæði og einnig tuskumottur en fór síðan að þróa veggteppi sem listvefnað og varð þekkt sem brautryðjandi á því sviði í Danmörku. Júlíana óf abstrakt en málaði hlutbundið og sýndi hvort tveggja á sýningum. Hún settist að í Danmörku að loknu námi en kom reglulega til Íslands til að mála.

 

 

 

This large tapestry is a good example of the freedom with which Júlíana used wool in her artistic practice. Geometric forms are well suited to the nature of the woven structure of the vertical warp and horizontal weft that Júlíana used in developing organic forms into the tapestry. A white-dotted black stripe swirls across a yellow background. Behind it are two horizontal planes of colour – grey-brown and terracotta – grounding the compositional structure, while the grey and white round form endows it with a lightness to balance the horizontal lines. The work was acquired on the occasion of a retrospective of Júlíana’s works at the National Gallery of Iceland in 2003. A year later Júlíana’s cousin Leifur Sveinsson donated sketches and drawings that had belonged to the artist. One of the sketches, a study for the tapestry, shows that Júlíana had originally planned to have the grey circle in the same colour as in the lower horizontal line, but the outcome was different.  

Júlíana was an ambitious painter and in 1917 she became the second Icelandic woman to receive a degree from the Royal Danish Academy of Fine Arts in Copenhagen. To make a living she taught herself to weave, a skill that would go on to play a much greater role in her artistic career. Working with Icelandic wool, along with coloring fibers with plant-based dyes became her speciality. Initially she wove materials used for design products such as clothing, curtains, and upholstery, as well as soft floormats, but she later developed tapestries as artistic textiles; she became known in Denmark as a pioneer in the field. Her paintings were objective while her weaving was abstract, and she exhibited both publicly. Upon completing her studies, Júlíana settled in Denmark, but she regularly visited Iceland to paint.

 

 


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.