Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurGerður Helgadóttir 1928-1975
VerkheitiSíðsumar
Ártal1955-1956

GreinSkúlptúr - Málmskúlptúrar
Stærð65 x 55 x 55 cm
Eintak/Upplag1
EfnisinntakAbstrakt

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-7086/86
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniStál
Aðferð Stálsmíði
HöfundarétturGerður Helgadóttir-Erfingjar 1928-1975, Myndstef

Sýningartexti

Gerður Helgadóttir sýndi fyrst allra þrívíð abstraktverk hér á landi á einkasýningu sinni í Listamannaskálanum árið 1952. Abstraktlistin var þá efst á baugi í París þar sem Gerður var við nám frá 1949 til 1951 og þar sem hún starfaði að mestu leyti það sem eftir lifði ævinnar. Efniviður hinna geómetrísku abstraktverka Gerðar, járn, var einnig nýlunda hér en járn hentar vel til að útfæra fíngerð form sem útheimta nánast vísindalega nákvæmni. Yngri verk hennar einkennast meðal annars af hárfínum stálþráðum sem mynda teikningu í rýminu og eftir að hafa numið glerlist í París árið 1954 tengdi hún glerið einnig við höggmyndir sínar og felldi það inn í verkin. Verkið sem hér sést, Síðsumar, er líklega gert 1955 eða 1956 og er úr járni og gleri. Það er eitt þeirra verka Gerðar sem er að mestu leyti samhverft og vandlega uppbyggt en þó með tilbrigðum sem gæða það lífi. 


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.