Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurEirún Sigurðardóttir 1971-, Gjörningaklúbburinn , Jóní Jónsdóttir 1972-, Sigrún Inga Hrólfsdóttir 1973-
VerkheitiDynasty
Ártal2007

GreinNýir miðlar, Nýir miðlar - Vídeóverk
Tímalengd00:13:
Eintak/Upplag1/3
EfnisinntakLandslag, Listamaður, Pels, Skartgripur

Nánari upplýsingar

NúmerLÍ-9044
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráAðalskrá

EfniVídeó
AðferðTækni,Ljósmyndun
HöfundarétturGjörningaklúbburinn

Sýningartexti

Vídeóverkið Dynasty er framtíðarsýn, sem er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um umhverfið og hlýnun jarðar og skapað að beiðni The Natural World Museum fyrir sýninguna Envisioning Change árið 2007. Heiti verksins, Dynasty, vísar meðal annars til samnefndrar sjónvarpsþáttaraðar frá 9. áratugnum sem fjallaði um örlög olíubaróna í Texas en margar af þeim loftslagsbreytingum, náttúruhamförum og breytingum á lífríki jarðar sem mannkynið stendur nú frammi fyrir má beint eða óbeint rekja til mannlegrar breytni og er notkun jarðefnaeldsneytis þar efst á blaði.

Í verkinumá sjá þrjár fínar forréttindafrúr sem hafa hlaupist á brott úr einbýlishúsum sínum, upp til fjalla, til að njóta kulda og víðerna, sem eru mikill munaður þegar hnattræn hlýnun er farin að ógna lífríki jarðar. Þær klæðast sínum hlýjustu pelsum og veiða sér til matar, sitja saman við eldinn og syngja, hekla og hugleiða. Símarnir virka ekki og fartölvur eru gagnslausar. Þegar hitinn hækkar fara þær úr pelsunum og hverfa að lokum sjálfar út í tómið og tímann. Í bakgrunni má sjá virkjanamannvirki sem vekja upp spurningu um hvað verður um rafmagnsframleiðsluna þegar jöklarnir hafa bráðnað og jökulárnar eru horfnar. Hvernig væri líf okkar án rafmagns?

 

The video work Dynasty is a vision of the future, meant to raise people's awareness of the environment and global warming. It was commissioned by The Natural World Museum for the show Envisioning Change in 2007. The name of the work, Dynasty, partly refers to the TV series of the same name that follows the story of oil barons from Texas. Many of the effects of climate change now felt by humanity, including natural disasters and changes in the earth's ecosystem, can be directly or indirectly traced back to human activity, with the use of fossil fuels at the top of the list.  

 

In this work you can see three privileged ladies who have run off to the mountain to enjoy the cool and open spaces, a luxury now that global warming is threatening the earth's ecosystem. They wear their warmest fur coats and hunt for their food, huddle over the fire, sing, crochet and meditate. The phones don't work, the laptops are useless. When the temperature rises they take off their coats and eventually disappear themselves into the void and time. In the background, one can see buildings belonging to a power station and a dam, images that raise questions on what happens to electricity production when the glaciers have melted and the glacial rivers have disappeared. What would our lives be like without electricity?


© Höfundarréttur

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni, en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og viðkomandi safns. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting/eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef


© Copyright

National and international copyright laws protect the artwork here presented. Publishing of the artwork on this website is based on a Extended Collective License (ECL) between Myndstef and each museum, according to the Icelandic copyright bill. This ECL also permits the use of the artworks for research, educational or private use. The artworks may not be reproduced or made public in any other way. Please contact Myndstef for further information or in order to obtain a license.

Þetta aðfang er í Listasafni Íslands. Safnið varðveitir rúmlega 13 þús. listaverk eftir rúmlega 800 listamenn og er tæplega helmingur þeirra Íslendingar. Meirihluti verkanna er eftir innlenda listamenn eða um 12 þús. verk. Flest verkanna eru gjafir til safnsins en tæplega fjórðungur safneignarinnar er keyptur.

 

Öll verk í safneigninni eru skráð í stafrænan gagnagrunn sem er aðgengilegur í safninu. Unnið er að skráningu þeirra í Sarp og birtingu upplýsinga á vefnum Sarpur.is.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.