Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurIngunn Fjóla Ingþórsdóttir 1976-
Verkheiti(Ó)stöðugur hlutur III
Ártal2014

GreinMálaralist - Málverk
Stærð35 x 54 cm
Eintak/Upplag1

Nánari upplýsingar

NúmerHb-1460
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráHeildarsafn

EfniAkrýllitur, Blý, MDF

Lýsing

Verkið var sýnt á sýningunni (Ó)stöðugir hlutir / (Un)steady Objects í TÝS Gallerí 10.7-03.08 2014. 

Myndheimur Ingunnar Fjólu er síkvikur og margbreytilegur. Við fyrstu sýn er strangflatar geometrían áberandi; formrænar tilraunir þar sem stíf formfesta og regla byggja upp myndflötinn. En það er ekki allt fyrirfram gefið, nýtt sjónarhorn áhorfandans gefur nýja mynd og nýja skynjun. Áhorfandinn er laðaður til að hreyfa sig og skoða verkin frá fleiri hliðum. Liturinn, formið og línan taka breytingum og birtast á nýjan hátt eftir stöðu áhorfandans. Verkin öðlast hreyfingu og hætta að vera kyrrstæðir hlutir á vegg; stöðugleiki víkur fyrir óstöðugleika.

(Aldís Arnardóttir, sýningartexti (Ó)stöðugir hlutir, 2014.)

Þetta listaverk er í safneign Hafnarborgar – menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Safneignin telur yfir 1500 verk, er þetta er skrifað. Í skráningunni er verkunum skipt í fjóra flokka sem eru: almenn listaverkaskrá, stofngjöf, verk Eiríks Smith og útilistaverk í Hafnarfirði. Ekki eru til birtingarhæfar ljósmyndir af öllum verkum, þó unnið sé að úrbætum í þeim efnum.

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og safnsins. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu- eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting eða eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef (myndstef@myndstef.is).


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.