Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
ListamaðurEiríkur Smith 1925-2016
VerkheitiÁn titils "Gamall sjómaður"
Ártal1973

GreinMálaralist - Olíumálverk
Stærð120 x 140 cm
Eintak/Upplag1
EfnisinntakBryggja, Haf, Sjómaður, Stafur

Nánari upplýsingar

NúmerHb-448
AðalskráMyndlist/Hönnun
UndirskráEiríkur Smith, Heildarsafn

EfniOlíulitur, Strigi

Lýsing

Tilbrigði við sjómanna-og hafnartemað frá öndverðum 8. áratugnum, þar sem sjómenn, ungir og gamlir, eru sýndir á eða við bryggjusporð sem gengur á haf út, fuglager og dramatíska skýjabólstra. Hér situr gamall sjómaður með staf í forgrunni og hugsar um liðna tíð.

Sjá einnig: Hb 228, 234, 239, 240, 242, 245, 250, 252, 253 og 444.

(Aðalsteinn Ingólfsson, Eiríkur Smith – Catalogue Raisonné, 2008, bls. 62.)

 

Þetta listaverk er í safneign Hafnarborgar – menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Safneignin telur yfir 1500 verk, er þetta er skrifað. Í skráningunni er verkunum skipt í fjóra flokka sem eru: almenn listaverkaskrá, stofngjöf, verk Eiríks Smith og útilistaverk í Hafnarfirði. Ekki eru til birtingarhæfar ljósmyndir af öllum verkum, þó unnið sé að úrbætum í þeim efnum.

Afrit af safnkosti þeim er hér er birtur felur í sér höfundaréttarvarið efni en birtingin fer fram á grundvelli samningskvaðasamnings á milli Myndstefs og safnsins. Samningurinn veitir enn fremur leyfi til endurnotkunar verkanna til einkanota og í kennslu- eða í fræðsluskyni. Öll önnur endurbirting eða eintakagerð er óheimil. Ef spurningar vakna um forsendur samningskvaðasamningsins, eða ef einstaka höfundur vill ekki heimila notkun verka sinna undir ofangreindum skilmálum, skal hafa samband við Myndstef (myndstef@myndstef.is).


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.