Tilgangur

Markmið

Meginmarkmið með Sarpi er að varðveita menningarsögulegar upplýsingar hjá Þjóðminjasafni Íslands, Fornleifavernd ríkisins, Húsafriðunarnefnd ríkisins, Örnefnasafni Stofnunar Árna Magnússonar og sambærilegum stofnunum og fyrirtækjum með það í huga að:

  • Staðla og samræma skráningu og leit
  • Bæta aðgengi, m.a. á veraldarvefnum
  • Tryggja sem besta og öruggasta varðveislu með nútímatækni

Hlutverk

Sarpur er hugsaður sem:

  • Skráningartæki, til að skrá menningarsögulegar grunnupplýsingar hjá opinberum og einkareknum söfnum, stofnunum og fyrirtækjum.
  • Stjórnunartæki, m.a. til stefnumótunar á sviði söfnunar og varðveislu.
  • Upplýsingaveita:
    • Fyrir starfsfólk safnanna
    • Fyrir fræðimenn
    • Fyrir nemendur og kennara á mismunandi skólastigum
    • Fyrir fróðleiksfúsan almenning

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning