Sarpur 3.0 - Nýtt

Hver er staða kerfisgerðar Sarps 3.0?

  • Gerð kerfisins er að mestu lokið.

Hver er staða gagnaflutnings?

  • Flutningi stoðtaflna er lokið.
  • Unnið er að gagnaflutning og áætlað að honum ljúki á fyrri hluta ársins.

Hvenær verður innri vefur Sarps 3.0, sem er fyrir skráningar- og uppflettiaðila gagnaeigenda, tekinn í notkun?

  • Búið er að opna fyrir skráningaraðgang að öllum skrám kerfisins.
  • Formleg skráning hófst 1. apríl sl.
  • Vegna þess var skrifað undir samning um hýsingu, þróun og viðhald kerfisins við Þekkingu 31. mars sl.

Hvernig verður staðið að kynningu á innri vef Sarps 3.0?

  • Fyrir skráningaraðila: Útbúin hafa verið skjábönd sem gerð voru aðgengileg um leið og opnað var fyrir skráningaraðganginn.
  • Fyrir uppflettiaðila gagnaeigenda: Útbúin verða skjábönd sem gerð verða aðgengileg um leið og opnað verður fyrir lesaðgang.

Hvenær verður lokað fyrir Sarp 2.0?

  • 1. apríl sl. var lokað fyrir nýskráningu og breytingar á gögnum en uppfletting er áfram aðgengileg.
  • Þegar gagnaflutningi lýkur verður lokað fyrir uppflettiaðganginn.
Hvenær verður ytri vefurinn, sem er ætlaður almenningi, tekinn í notkun?

Ætlunin er að opna hann í tveimur megin áföngum:

  • Þegar gagnaflutningi lýkur verður opnað fyrir svonefnd lykluð svæði.
  • Líklegt er að opnað verði smám saman fyrir aðgang að frjálsum textasvæðum en það fer eftir því hvernig yfirferð og yfirlestri þeirra miðar. 
  • Vegna höfundarréttarlaga og laga um persónuvernd verður ekki hægt að birta öll gögn á ytri vefnum nema að rétthafi hafi veitt til þess leyfi. Það á t.d. við um svör við spurningaskrám um þjóðhætti og andlitsmyndir af lifandi fólki.

Annað -  Þjóðháttaskrá

Vegna þarfa háskólanema fyrir aðgang að efni þjóðháttaskrár verður reynt eftir því sem mögulegt er að veita tímabundinn aðgang fyrr en hér er rætt um. Þó er ekki hægt að tímasetja það nánar sem stendur.

 

 

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning